Lífið

Boston opnaður á Laugaveginum

Boston 
Nýi staðurinn verður opnaður á efri hæðinni innan skamms og verður skemmtileg viðbót í veitingahúsaflóru miðbæjarins.
Boston Nýi staðurinn verður opnaður á efri hæðinni innan skamms og verður skemmtileg viðbót í veitingahúsaflóru miðbæjarins. MYND/Heiða

Þetta verður matsölustaður með góðan mat og góðan anda, segir Sigríður Guðlaugsdóttir annar eigandi á nýjum stað sem verður opnaður innan skamms.

Staðurinn ber nafnið Boston og er fyrir ofan verslunina Spúútnik á Laugavegi, en þar var einu sinni matsölustaðurinn Sjanghæ. Sigríður er ekki ókunn rekstri í miðbænum en hún á skemmtistaðinn Sirkus ásamt vinkonu sinni Ingu Sólveigu.

Þessi staður á ekkert skylt við Sirkus enda verður þetta matsölustaður en ekki skemmtistaður, segir Sigríður.

Meðeigandi Sigríðar í staðnum er Hildur Helgadóttir en Sigrún Hólmgeirsdóttir mun sjá um allan rekstur á staðnum en hún sá eitt sinn um rekstur á Kaffibarnum. Við erum bara að bíða eftir öllum leyfum og svo opnum við með pompi og prakt, segir Sigríður að lokum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.