Lífið

Lofar svakalegum tónleikum

ham Rokksveitin Ham, sem lagðist í dvala árið 1994, heldur tónleika á Nasa í kvöld.
ham Rokksveitin Ham, sem lagðist í dvala árið 1994, heldur tónleika á Nasa í kvöld. mynd/Gúndi

Hljómsveitin Ham heldur tónleika á skemmtistaðnum Nasa í kvöld, mörgum íslenskum rokkurum til mikillar gleði.

Síðast spilaði sveitin á Hætta-tónleikunum í Höllinni þann 7. janúar en þar áður hitaði hún upp fyrir Rammstein fyrir fimm árum eftir að hafa lagst í dvala árið 1994.

"Þetta verður svakalegt," segir Sigurjón Kjartansson, söngvari og gítarleikari Ham, sem lofar hörkutónleikum í kvöld. "Við erum búnir að vera æfa fyrir þessa dagsetningu og þetta lítur vel út. Aðdragandinn að þessum tónleikum hefur tekið kannski fjögur til fimm ár. Það má segja að hlutir sem við gerum mælist frekar í árum heldur en vikum, við erum komnir á þann aldur. Það er oft dálítið erfitt að koma mönnum saman," segir Sigurjón.

Ham mun spila nýja lagið sitt, Sviksemi, á tónleikunum en langt er síðan síðast heyrðist nýtt efni frá sveitinni. "Þetta er fullkomlega klassískt Ham-lag. Það er ekki hægt að lýsa því öðruvísi," segir Sigurjón. Samdi hann lagið sjálfur en textann samdi hann með Óttarri Proppé. "Það hefur eiginlega allt sem gott Ham-lag prýðir. Ég er mjög ánægður með það."

Sigurjón vill ekki lofa því að annað nýtt lag verði spilað í kvöld, það eigi eftir að koma í ljós. Sveitin hafi engu að síður samið nokkur lög og stefni á að gefa þau út síðar meir á nýrri plötu, sem yrði önnur hljóðversplata Ham. "Það vantar dálítið þessa virkilega góðu Ham-plötu en ég get engu lofað um hvenær hún verður gerð og hvenær hún kemur út," segir Sigurjón, sem segist vera opinn fyrir frekara tónleikahaldi með hljómsveit sinni.

Hljómsveitin 9/11"s hitar upp á Nasa í kvöld. Miðasala á tónleikana fer fram á midi.is, í Skífunni og BT.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.