Lífið

Lára með tónleika

lára Tónlistarkonan Lára gaf nýverið út sína aðra sólóplötu.
lára Tónlistarkonan Lára gaf nýverið út sína aðra sólóplötu. MYND/Hörður

Tónlistarkonan Lára Rúnarsdóttir heldur tónleika á Grand Rokk í kvöld. Lára mun spila efni af nýjustu plötu sinni Þögn ásamt hljómsveit sinni. Einnig mun söngkonan Lay Low koma fram.

Þögn er önnur sólóplata Láru og er hún gefin út undir merkjum Dennis Records. Á plötunni er að finna tólf frumsamin lög og texta eftir Láru.

Tónleikarnir á Grand Rokk hefjast klukkan 22.00 og er aðgangseyrir enginn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.