Lífið

Leitað að tunglinu

Heljarinnar tónleikaferð Jazzkvartett Sigurðar Flosasonar rúntar um landið.
Heljarinnar tónleikaferð Jazzkvartett Sigurðar Flosasonar rúntar um landið. MYND/Heiða

Jazzkvartett Sigurðar Flosasonar og söngkonan geðþekka Kristjana Stefánsdóttir munu leggja upp í tónleikaferð um landið þar sem þau kynna hljómdiskinn Hvar er tunglið? sem kom út nýlega. Diskurinn inniheldur tónsmíðar Sigurðar Flosasonar við texta Aðalsteins Ásbergs Sigurðssonar en á honum eru 24 spánný lög.

Ferðin hefst með tónleikum í Þjóðleikhúskallaranum í kvöld kl. 20.30, en alls verða haldnir tíu tónleikar. Auk söngkonunnar Kristjönu og saxófónleikarans Sigurðar leikur Eyþór Gunnarsson á píanó, Valdimar K. Sigurjónsson á kontrabassa og Pétur Östlund á trommur með hljómsveitinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.