Lífið

Villtar plöntur skoðaðar

Fagur fífill Ekki eru allir jafn hrifnir af túnfíflinum sem vex víða villtur.
Fagur fífill Ekki eru allir jafn hrifnir af túnfíflinum sem vex víða villtur.

Í dag verður samnorræni blómadagurinn haldinn hátíðlegur á öllum Norðurlöndunum. Hér á Íslandi skipuleggja Flóruvinir daginn en markmið hans er að vekja áhuga almennings á villtum plöntutegundum. Dagurinn byrjar á plöntuskoðun fyrir áhugasama í samstarfi við Ferðafélag Íslands í Undirhlíðum á Reykjanesfólkvangi.

Það er grasafræðingurinn Eva G. Þorvaldsdóttir sem leiðir hópinn en lagt verður af stað frá húsnæði Ferðafélagsins kl. 10. Að plöntuskoðuninni lokinni verður farið í Grasagarðinn þar sem safndeildin Flóra Íslands verður kynnt. Að lokum verður þátttakendum boðið upp á te úr þurrkuðum, íslenskum jurtum. Áhugasömum er bent á að gott er að hafa handbók um íslenskar plöntur meðferðis í plöntuskoðunina.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.