Lífið

Róluvöllurinn innblásturinn

Róluvöllur innblástur Verkið Sumartónar eftir Þorkel Sigurbjörnsson var samið að beiðni Vladimirs Ashkenazy en það er sennilega hið eina sinnar tegundar enda fjallar það um róluvöll.
Róluvöllur innblástur Verkið Sumartónar eftir Þorkel Sigurbjörnsson var samið að beiðni Vladimirs Ashkenazy en það er sennilega hið eina sinnar tegundar enda fjallar það um róluvöll.

Nýtt tónverk eftir Þorkel Sigurbjörnsson sem hlotið hefur nafnið Sumartónar er runnið undan rifjum æskuminninga tónskáldsins.

Verkið verður frumflutt af Sinfóníu­hljómsveit Íslands á síðustu tónleikum sveitarinnar í sumar.

Verkið var samið að beiðni hljóðfæraleikarans og hljómsveitar­stjórans, Vladimirs Ashkenazy en hann mun koma fram að minnsta kosti einu sinni ári til að stjórna hljómsveitinni.

Þorkell sótti innblástur í verkið af æskudögum sínum á róluvellinum við Freyjugötu en þaðan segist hann eiga góðar minningar. "Þarna voru alltaf mikið af leiktækjum, rólum, söltum og sandkössum, rennibrautum, klifurgrind og annað sem var síðan ekki nothæft á veturna. Þarna lékum við krakkarnir okkur líka án leiktækja í fallinni spýtu, eitt stikk og sto, auraharki, fram fram fylking eða bófahasar og svo framvegis. Í leikjum sem engin kann lengur," segir Þorkell.

"Við vorum yfirleitt góðir krakkar. Það var lítið um hrekkjusvín í þeim hópi sem ég tilheyrði sem krakki, sem betur fer. Stundum kom Siggi gamli og spilaði fyrir okkur á munnhörpu, og hoppaði eitthvað, sem hann kallaði karíóka. Leiðinlegust var löggan í hverfinu sem vildi koma okkur krökkunum í hús samkvæmt einhverju klukkuslagi seint á kvöldin. Svo var hægt að læðast út fyrir borgarmörkin, yfir Hringbraut og í Tívolí í Vatnsmýrinni. Þaðan komu líka alls konar sumartónar, ef heppnin var með".

Til fulltingis við Sinfóníuhljómsveit Íslands mun leiðandi selló­leikari Sinfóníuhljómsveitarinnar, Bryndís Halla Gylfadóttir, leika sellókonsert eftir Edward Elgar. Bryndís hefur verið virkur þátttakandi í íslensku tónlistarlífi undanfarin ár, jafnt sem einleikari og í kammertónlist. Auk þess að leika á tónleikum hér á landi reglulega spilar Bryndís oft á tónleikum bæði í Evrópu og í Asíu. Um selló­konsert­verkið segir Árni Heimir Ingólfsson tónlistarfræðingur í efnisskrá, "sellókonsertinn er magnþrungin tónsmíð, full af ástríðu og trega, eins og Elgar líti um öxl og minnist þess sem áður var. Hann hefst á tignarlegu eintali ástríðu og trega, sem minnir helst á dramatískt resítaív án orða og snýr aftur á lykilstöðum í verkinu".

Tónleikarnir fara fram í Háskólabíói fimmtudaginn 15. júní og hefjast klukkan 19:30.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.