Tónlistarhátíð í Djúpinu 15. júní 2006 11:00 Reiknar með góðri þátttöku Tinna Þorsteinsdóttir píanóleikari er stjórnandi tónlistarhátíðarinnar Við Djúpið.
Á næstunni verður haldin tónlistarhátíð og námskeiðshald sem standa mun í fimm daga í samvinnu við Listaháskóla Íslands. Þetta er í fjórða sinn sem hátíðin fer fram en hún var haldin í Ísafjarðarbæ og Bolungarvík í fyrsta sinn árið 2003 og árlega eftir það, nú síðast í samstarfi við Listahátíð í Reykjavík og PACIFICA-strengjakvartettinn. Markmið hátíðarinnar er að bjóða upp á fjölbreytta tónleika fyrir Vestfirðinga og ferðamenn á svæðinu og metnaðarfulla kennslu, að sögn stjórnanda hátíðarinnar, Tinnu Þorsteinsdóttur. Hátíðin ber keim af fjölmörgum tónlistarstefnum og er hún breytileg frá ári til árs. Í ár má heyra allt frá klassískri tónlist til nútímatónlistar, einleiks- og kammertónlist, íslenska sem erlenda, ásamt tónlistarbræðingi þeirra FLÍS-félaga, undirstrikar Tinna. Hátíðin í ár ber heitið Við Djúpið en í boði er kennsla fyrir söngvara, söng- og píanódúetta, píanó og flautu, en samkvæmt Tinnu má búast við að um fimmtán til tuttugu nemendur úr Listaháskóla Íslands sem langt eru komnir í námi mæti til leiks. Kennara- og flytjendahópurinn samanstendur af þeim Sigrúnu Hjálmtýsdóttur (Diddú), sópransöngkonu, Önnu Guðnýju Birgisdóttur pínanóleikara, Peter Máté píanóleikara, Guðrúnu S. Birgisdóttur flautuleikara og Tinnu Þorsteinsdóttur, píanóleikara og FLÍS-tríói. Það er mikill fengur að fá þær Diddú og Önnu Guðnýju til liðs við okkur á hátíðina i ár en þetta er fágætt tækifæri fyrir nemendur að teyga af viskubrunni þeirra stallna sem eru afar uppteknar við leik og störf, segir Tinna. Það er mjög mikilvægt fyrir nemendur að fá að fylgjast með listafólkinu að störfum því þau læra ekki síður af því. Hugmyndin er síðan sú að nemendur og kennarar komi saman í lok námskeiðs og haldi stóra lokatónleika. Gegn vægu gjaldi standa masterklassarnir almenningi opnir þannig að fólk getur fylgst með kennurum og nemendum að leik og starfi. Í náinni framtíð er gert ráð fyrir því að nemendur fái einingar metnar fyrir námskeiðið, að sögn Tinnu, en til stendur að víkka talsvert út starfsemi hátíðarinnar og er stefnt á að sú vinna teygi jafnvel anga sína út fyrir landsteinana næstu árin. Nánari upplýsingar um dagskrá hátíðarinnar má finna á www.viddjupið.is- brb
Menning Mest lesið Misstu þrettán ára dóttur sína Lífið Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Lífið Hasar, húmor og hryllingur til að hámhorfa í haust Bíó og sjónvarp Staðráðnar í að koma sterkari til baka Tíska og hönnun Karl Th. Birgisson borinn til grafar Lífið Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Lífið Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Lífið Minningar um mömmu það allra verðmætasta Tíska og hönnun Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Lífið Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Lífið Fleiri fréttir Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Misstu þrettán ára dóttur sína Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Karl Th. Birgisson borinn til grafar Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Tvíburasystur fæddu börn sama dag á sama sjúkrahúsi Unnur Borg og Gugga saman í paradís Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Karl Th. jarðsunginn í dag Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Love on the Spectrum-stjarna spókar sig á klakanum Hvað veistu um... Pólland? Pattra með pæju-padelmót Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par „Þetta er bara nútímavændi“ Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Stökk Ulrike Meinhof í heim hryðjuverkanna „Eins og þegar einangrunarplasti er strokið eftir glerrúðu“ Krabbameinið það besta sem hafi komið fyrir hann Dorrit þvoði hárið í íslenskri náttúru Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir „Bókmenntalegir palladómar frá mér ekki mikils virði“ Sjá meira