Ókeypis netlestur 14. júní 2006 16:00 bókasöfn framtíðarinnar Munu hæglega rúmast í fermillimetrum innan óravídda netsins.fréttablaðið/hari
Forsvarsmenn Gutenberg-verkefnisins og samtaka sem kennd eru við World eBook Library tilkynntu á dögunum að þau myndu veita lesendum ókeypis aðgang að liðlega 300.000 textum á netinu í júlímánuði. Framkvæmdin er liður í samstilltu átaki þeirra að gera rafrænar bækur aðgengilegar á netinu. Fyrsta "rafbókamessan" verður haldin í byrjun júlí en þá verða 35 ár liðin frá því að stofnað var til Gutenberg-verkefnisins. World eBook Library veitir annars aðgang að rúmlega 250 þúsund bókum, skjölum og greinum gegn vægu árgjaldi. Gutenberg-verkefnið (Project Gutenberg) miðar að því að gera gögn aðgengileg almenningi í einföldu rafrænu formi. Stærstur hluti verkefnisins felst í að færa texta, sem ekki eru háðir hugverkaréttindum, yfir í einfaldar textaskrár og gera úr þeim stafræn gagnasöfn. Nú þegar má nálgast nokkra texta á íslensku á heimasíðu Gutenberg-verkefnisins, svo sem Leiðarvísi í ástamálum: II. fyrir ungar stúlkur sem Jónína Sigríður Jónsdóttir skrifaði árið 1923. Forsprakki Gutenberg-verkefnisins, Michael Hart, segir að það hafi verið markmið verkefnisins frá upphafi að brjóta niður múra fáfræði og ólæsis í heiminum. Gutenberg-"bækurnar" eru skannaðar eða tölvuskráðar af þúsundum sjálfboðaliða en á flestum þeirra hvílir ekki höfundarréttur lengur sökum aldurs og er um að ræða bæði skáldverk, fræðirit og uppflettirit sem nú eru aðgengileg á rúmlega hundrað tungumálum. Hart spáir því að yfir tíu milljón bækur verði aðgengilegar á netinu árið 2020 en samtökin stefna að því að tryggja netaðgang að fyrstu milljón bókunum fyrir árið 2009. Þótt markaðurinn fyrir rafrænar bækur sé enn lítill segir Hart að þær njóti þegar mikilla vinsælda meðal þeirra sem nota lófatölvur og farsíma en einnig meðal þeirra iPod-notenda sem hafa hugbúnað í sínum græjum til þess að lesa bækur á rafrænu formi. -
Menning Mest lesið Misstu þrettán ára dóttur sína Lífið Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Lífið Hasar, húmor og hryllingur til að hámhorfa í haust Bíó og sjónvarp Staðráðnar í að koma sterkari til baka Tíska og hönnun Karl Th. Birgisson borinn til grafar Lífið Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Lífið Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Lífið Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Lífið Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Lífið Minningar um mömmu það allra verðmætasta Tíska og hönnun Fleiri fréttir Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Misstu þrettán ára dóttur sína Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Karl Th. Birgisson borinn til grafar Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Tvíburasystur fæddu börn sama dag á sama sjúkrahúsi Unnur Borg og Gugga saman í paradís Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Karl Th. jarðsunginn í dag Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Love on the Spectrum-stjarna spókar sig á klakanum Hvað veistu um... Pólland? Pattra með pæju-padelmót Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par „Þetta er bara nútímavændi“ Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Stökk Ulrike Meinhof í heim hryðjuverkanna „Eins og þegar einangrunarplasti er strokið eftir glerrúðu“ Krabbameinið það besta sem hafi komið fyrir hann Dorrit þvoði hárið í íslenskri náttúru Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir Sjá meira