Gerir myndband fyrir Will Oldham 14. júní 2006 11:00 Einar Baldvin Arason Ungur og upprennandi myndbandagerðarmaður sem skilaði nýverið af sér myndbandi fyrir Will Oldham. Fréttablaðið/E.Ól.
Við vorum bara að djamma saman þegar þetta barst í tal. Ég hef nokkuð gaman af tónlist hans og sagðist vera til í að gera myndband fyrir hann og hann sagði já, segir Einar Baldvin Arason, 26 ára gamall kvikmyndagerðarmaður, sem gerði nýverið myndband fyrir tónlistarmanninn Will Oldham. Í haust er von á nýrri plötu með Oldham sem hann gerir undir nafninu Bonnie Prince Billy. Myndband Einars Baldvins verður við fyrsta smáskífulag plötunnar, Cold and Wet, sem kemur út í nóvember. Eins og Fréttablaðið greindi frá fyrir skemmstu stjórnaði Valgeir Sigurðsson í Gróðurhúsinu upptökum á plötunni. Einar Baldvin hefur getið sér gott orð fyrir þrjú myndbönd sem hann gerði fyrir reykvísku rokksveitina Jan Mayen. Hann gerði auk þess myndband fyrir bresku hljómsveitina 586. Nýja myndbandið er teiknimynd en hann hefur leikið sér talsvert með það form í myndböndum sínum. Hann sendi mér lagið og ég gerði litla teiknimynd við það. Við hittumst ekkert út af þessu heldur vorum bara í sambandi í gegnum netið. Ég fékk mjög frjálsar hendur, segir Einar Baldvin. Hann segir að sagan í myndbandinu fjalli um lítinn björn í skógi sem hittir unga konu og verður ástfanginn af henni. Svo fer allt á versta veg hjá birninum unga og lífið gengur honum smám saman úr greipum. Einar Baldvin hefur verið að búa til tónlistarmyndbönd í að verða þrjú ár. Hann starfar auk þess hjá Sjónvarpinu við að framleiða og klippa sjónvarpsefni. Hann segist vera mjög spenntur fyrir því að gera meira af myndböndum í framtíðinni. Mér finnst mjög gaman að segja svona litlar sögur og það er fínt að geta dobblað einhverjar hljómsveitir til að gera fyrir þær myndbönd. Það er líka svo skrambi flókið að gera heila bíómynd að þetta er bara fín byrjun.
Menning Mest lesið Ógleymanlegt kvöld í alla staði Lífið Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Lífið Sálin kom saman í fyrsta sinn í rúman áratug Lífið Sambandi Cox og McDaid lokið Lífið Fréttatía vikunnar: Hvalveiðar, þvottabjörn og gjaldskylda Lífið Lofsyngja tónleika Laufeyjar í Kína Tónlist Krakkatía vikunnar: Margur verður af aurum api Lífið Sex íslenskir söngvarar ráðnir til Þjóðaróperunnar Menning „Kjóllinn markaði nýtt upphaf í mínu lífi“ Tíska og hönnun Gugga gestur í afmælisboði Kanye West Lífið Fleiri fréttir Krakkatía vikunnar: Margur verður af aurum api Sambandi Cox og McDaid lokið Ógleymanlegt kvöld í alla staði Sálin kom saman í fyrsta sinn í rúman áratug Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Fréttatía vikunnar: Hvalveiðar, þvottabjörn og gjaldskylda Kominn á toppinn Leggur til að hætt verði lestri kveðja við útfarir Lét drauminn rætast á Ítalíu Syrgja Arnar Atla sem lést 24 ára gamall Nálgast hundrað þúsund fylgjendur á Instagram og rekur sveitahótel Sindri gerðist trukkabílstjóri Piparmeyjan Paul mæti á skjáinn í júlí Laufey óskar ástinni sinni til hamingju með daginn Kolfinna Nikulás og Sturla Atlas halda á ný mið Greta Salóme á von á sínu þriðja Bónorð yfir síðum bjór á Brooklyn-brúnni Ungir veiðimenn nutu sín í sólinni Hvað veistu um... Ross í Friends? GusGus drottning og frú selja í Hafnarfirði „Þetta átti allt að gerast og ég er þakklát í dag“ Athafnahjón selja sjarmerandi hús í Vesturbæ Ólík túlkun listamanna á Reykjavík í tvær aldir „Ég vil gera frábæra hluti eins og ég sé í sjónvarpinu“ Jóhann Örn fulltrúi Íslands í Mr. Bear Europe Þrastahreiður í Garðabæ í beinni Kjarnorkuverkfræði-draumurinn rætist í París Gugga gestur í afmælisboði Kanye West Söguleg skiltaskipti á Ölstofunni Urður trúlofuð og mætt aftur á Instagram Sjá meira