Lífið

Leikur tónlist meistaranna

roman rudnytsky Úkraínski píanóleikarinn heldur sína aðra tónleika í Salnum í kvöld.
roman rudnytsky Úkraínski píanóleikarinn heldur sína aðra tónleika í Salnum í kvöld.

Úkraínski píanóleikarinn Roman Rudnytsky heldur tónleika í Salnum í Kópavogi í kvöld. Þetta verður í annað sinn sem Roman heldur tónleika hér á landi.

Rudnytsky, sem hélt síðast tónleika í Salnum árið 2001, mun spila verk eftir Manuel Herrarte, Beethoven, Chopin, Liszt, Ravel og Modest Mussorgsky. Yfirskrift tónleikanna er Pianistic Portraits.

Rudnytsky er þekktur píanóleikari frá Úkraínu og reyndur konsertpíanisti sem hefur ferðast vítt og breitt um heiminn til að halda tónleika. Á ferli sínum hefur hann spilað í fjölmörgum þekktum tónlistarhúsum.

Hann hefur ekki síður áhuga á að spila við óhefðbundnar aðstæður og fyrir áheyrendur sem sjaldan upplifa klassíska tónlist.

Með tónleikahaldi sínu í Salnum vill hann því ekki bara ná til reyndra hlustenda, heldur hvetur hann einnig alla þá sem hefur lengi langað að kynna sér píanótónlist meistaranna til að grípa nú tækifærið.

Miðaverð á tónleika er 1.600 og 2.000 krónur og fást miðar í síma 570-0400 eða á salurinn.is.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.