Mögnuð tónlistarveisla í Reykjavík 8. júní 2006 15:00 Gítarleikari Sleater-Kinney, Carrie Brownstein, lék við hvern sinn fingur á tónleikunum. MYND/hörður
Hin nýafstaðna Reykjavík Trópík tónleikahátíð var með eindæmum skemmtileg og virkilega góð ára yfir hátíðinni. Hálf fasískir tilburðir lögreglunnar í Reykjavík til þess að bæla hana niður voru hins vegar skammarlegir, tilllitslausir og hrokafullir. Nemar í Háskóla Íslands voru búnir að vinna frábært starf til þess að gera þessa hátíð sem veglegasta og allt hafði farið vel fram. Ég held því að fáir skilji þá ákvörðun lögreglunnar að veita hátíðinni ekki skemmtanaleyfi fyrir þriðja deginum á þeim forsendum að hún vildi ekkert sukk. Reyndar varð þessi ákvörðun lögreglunnar til þess að einn eftirminnilegasti tónlistarviðburður seinni ára átti sér stað á sunnudagskvöldið á Nasa. Íslensku hljómsveitirnar voru allar pottþéttar og spiluðu spennandi efni. Áhugaverðust var án efa Skakkamanage enda kannski sú sveit sem flestir þekktu minnst til, skemmtilegt slowcore-indí-popp sem var fagmannlega flutt. Á undan Skakkamanage hafði hinn ofur breski Kid Karpet komið fram og var þar á ferð mikill stuðbolti og flippari sem fékk flesta til þess að brosa, svolítið eins og Mugison á eiturlyfjum. Stelpusveitirnar tvær, ESG og Sleater-Kinney, voru þó án efa hápunktar kvöldsins. Fyrst kom ESG fram og þegar fimm smávaxnar konur, og flestar í meira en góðum holdum, stigu á sviðið og byrjuðu að spila taktfasta tóna sína varð salurinn nær agndofa. Vissulega er hljómsveitin goðsögn en hún var þó á hátindi feril síns rétt upp úr 1980. Scroggins-stelpurnur sýndu sko heldur betur hvað í þeim bjó með einn rosalegasta trommara sem sést hefur í fararbroddi. Áhorfendur voru líka í brjáluðu stuði enda ekki annað hægt þegar á sviðinu stendur íturvaxin kona í hálf dónalega fleginni blússu og hristir sig eins og hún eigi lífið að leysa. Einhver almagnasta tónlistarupplifun seinni ára, æðisgengið í einu orði sagt. Sleater-Kinney var heldur ekkert slor þó svo að erfitt sé að bera tónleika þeirra saman við ESG enda tónlist hljómsveitanna of ólík. Stelpurnar í Sleater-Kinney voru ofurþéttar og gáfu áhorfendum varla tækifæri til að klappa fyrir sér, nema þá helst þegar þær þurftu að stilla gítarana. Lögin voru keyrð áfram af frábærum gítarleik Carrie Brownstein sem var óhrædd við að beita gítarnum. Lögin voru spiluð af bæði einbeitingu og krafti sem hefur hingað til verið vænlegt til vinsælda. Einfaldlega frábærir rokktónleikar á heimsmælikvarða, með líklegast einni af bestu stelpurokkhljómsveit sögunnar, takk fyrir. Yfirhöfuð var kvöldið einstakt og allir sem tónleikana sóttu hljóta að hafa farið meira en ánægðir heim.
Menning Mest lesið Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Lífið Engin stereótýpa: „Það breyttist allt þegar ég var í fimmta eða sjötta bekk“ Áskorun Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Lífið Stiklusúpa: Sturlað leikjahaust og vetur í vændum Leikjavísir Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Lífið Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Lífið Eitt myndband selji upp heilu lagerana Menning Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Lífið Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Lífið „Sterklega orðaður“ við Bond og efstur hjá veðbönkum Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Ocasio-Cortez á lausu Frægustu mágar landsins Office-stjarna með ólæknandi krabbamein Pálmi Kormákur og Guðrún nýtt par Selja útsýnishús með saunu og sjóvatnspotti Usher þvertekur fyrir klónið „Það er engin skömm í krabbameininu“ Sjá meira