Lífið

Miðaslagur hefst í dag

nick cave Tónlistarmaðurinn heimsþekkti, Nick Cave, heldur tónleika í Höllinni 16. september.
nick cave Tónlistarmaðurinn heimsþekkti, Nick Cave, heldur tónleika í Höllinni 16. september.

Miðasala á tónleika Nick Cave, sem fram fara í Laugardalshöll laugardaginn 16. september, hefst í dag.

Nick Cave kemur fram ásamt hljómsveit sem er skipuð Bad Seeds-meðlimunum Martyn P. Case, Jim Scavunos og Warren Ellis.

Um er að ræða sitjandi tónleika og verða aðeins seldir miðar í númeruð sæti. Einungis verða um 2500 miðar í boði svo búast má við að slegist verði um þá. Miðaverð í sal er 6.500 krónur, auk 440 kr miðagjalds, en 5.500 krónur í stúku, auk 380 kr miðagjalds.

Síðast þegar Nick Cave hélt tónleika hér á landi komust færri að en vildu jafnvel þó að boðið væri upp á tvenna tónleika. Báðir tónleikarnir þóttu enda afar eftirminnilegir.

Miðasalan hefst klukkan 10 og fer fram á midi.is, í Skífunni og BT á Akureyri, Egilsstöðum og Selfossi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.