Lífið

Guðrún og Friðrik Ómar skemmta sér

guðrún og friðrik Guðrún Gunnarsdóttir og Friðrik Ómar Hjörleifsson hafa sent frá sér plötuna Ég skemmti mér í sumar.
guðrún og friðrik Guðrún Gunnarsdóttir og Friðrik Ómar Hjörleifsson hafa sent frá sér plötuna Ég skemmti mér í sumar.
Þau Guðrún Gunnarsdóttir og Friðrik Ómar Hjörleifsson senda frá sér sína aðra plötu, Ég skemmti mér í sumar, á föstudag á vegum Senu.

Platan er eins konar framhald af plötunni Ég skemmti mér, sem sló í gegn fyrir síðustu jól og varð ein af söluhæstu plötunum árið 2005.

Nú er áherslan aftur á móti lögð á sumarlög frá árunum 1950-1975 og eru endurvaktar tólf af vinsælustu dægurperlunum sem Íslendingar hafa sungið og trallað með síðan þá. Má þar nefna Óbyggðaferð, Ég vil fara upp í sveit og Því ekki að taka lífið létt? Tónlistarmaðurinn Ólafur Gaukur útsetti lögin á einkar skemmtilegan hátt, líkt og á fyrri plötunni. Jafnframt stjórnar hann upptökum.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.