Myndband Silvíu Nætur 17. mars 2006 06:00 Silvía,Peppe og Romeo. Tökur á Eurovision myndbandinu fóru fram í Loftkastalanum á miðvikudaginn og verður það í anda tíunda áratugarins.
Eurovision keppnin í Grikklandi er rétt handan við hornið. Lag Þorvaldar Bjarna, Til hamingju Ísland í flutningi Silvíu Nætur, tekur þátt í forkeppni á fimmtudagskvöldið og ef allt gengur að óskum verðum við meðal hinna útvöldu sem halda áfram í aðalkeppnina laugardagskvöldið 20.maí. Hluti af kynningu á laginu er gerð myndbands og fóru tökur á því fram í upptökuveri fyrir aftan Loftkastalann á miðvikudaginn. Þegar Fréttablaðið bar að garði var allt á fullu en myndbandið getur reynst dýrmætt í öllu kynningarstarfinu. Gaukur Úlfarsson sér um leikstjórnina en hann hefur fylgt Silvíu við hvert fótmál síðan dívan birtist fyrst á Skjá einum. Dansflokkur Íslands leggur einnig sitt á vogaskálarnar auk þess sem Peppe og Romario styðja dyggilega við bakið á vinkonu sinni. Að sögn leikstjórans verður myndbandið í anda tíunda áratugarins. Við ætlum að gera þetta að ódauðlegri list, lýsir Gaukur yfir og hefur augljóslega smitast af meintum hroka Silvíu sem hefur verið óhrædd við hástemmdar yfirlýsingar. Gaukur reiknaði með að afraksturinn yrði frumsýndur um miðjan apríl og lofaði að það ætti fátt sameiginlegt með öðrum myndböndum sem Íslendingar hafa notast við í Eurovision - keppninni. Enskur texti við lagið er klár og sá Silvía sjálf um þýðinguna. Heitið er enn hernaðarleyndarmál en verður væntanlega upplýst þegar nær dregur að frumsýningardeginum.
Menning Mest lesið Mikil sorg á Alþingi Lífið Hvað hafa þau að fela? Lífið „Ég myndi ekki hrósa fólki fyrir að grennast“ Lífið Týndi sjálfri sér til að þóknast öðrum Tónlist Samstarfsfélagar að elskhugum Lífið Þingvellir stærsta verkefni Kaleo frá upphafi Lífið Sér mest eftir fullyrðingum sínum um einhverfu Lífið Bústaðarferð með vinum endaði á óvæntri trúlofun Lífið Hvað veistu um… Björgvin Halldórsson? Lífið Snúa aftur á byrjunarreit: „Það þekkir enginn rassinn á mér eins vel og Addi“ Tónlist Fleiri fréttir Þingvellir stærsta verkefni Kaleo frá upphafi „Ég myndi ekki hrósa fólki fyrir að grennast“ Mikil sorg á Alþingi Samstarfsfélagar að elskhugum Bústaðarferð með vinum endaði á óvæntri trúlofun Fyrsta BBQ- og reykmatarhátíðin í Kolaportinu um helgina Emily in Paris-stjarna látin Hvað hafa þau að fela? Þingmönnum skyndilega bannað að hanga í stiganum við matsalinn Hvað veistu um… Björgvin Halldórsson? Sér mest eftir fullyrðingum sínum um einhverfu Tvíburar sem búa saman, lærðu það sama og eignuðust börn á sama tíma Skrautlegt einvígi á Vistabella á Spáni „Af hverju er ég að leita í eitthvað svona ljótt?“ Frumkvöðull selur elegant íbúð í 101 Kveðjustund í ráðhúsinu Þegar yfirvöld gengust við fljúgandi furðuhlutum Óhefðbundið leynivopn Helgu Sigrúnar Nálægðin við dauðann gjörbreytti ferlinum Gói Sportrönd og Tinna selja í Hveragerði Móðurhlutverkið næst á dagskrá hjá Þóreyju Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Áslaug lék eftir útskriftarpósu móður sinnar Draumabrúðkaup Gerðar við Garda-vatn Stjúpur og fjólur það heitasta Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Sjá meira