Magnað sjónarspil Waters í Egilshöll 14. júní 2006 12:00 Magnað sjónarspil auk þess sem tónlistin naut sín vel í öflugu hljóðkerfinu. Flottir tónleikar sem verða lengi í minnum hafðir.
Gífurleg stemning var á tónleikum Roger Waters, fyrrverandi forsprakka Pink Floyd, í Egilshöll í fyrrakvöld. Um fimmtán þúsund manns voru samankomnir höllinni til að hlýða á þessa miklu goðsögn í tónlistarheiminum og varð vafalítið enginn fyrir vonbrigðum með útkomuna. Eins og gefur að skilja var þarna mikið um fólk á fertugs- og fimmtugsaldri sem kom til að sjá og heyra eina af hetjunum sínum frá því í æsku en einnig voru þarna yngri tónlistarunnendur sem hafa uppgötvað Floyd, jafnvel í gegnum foreldra sína. Eins og efnisskráin sagði til um spilaði Waters plötuna Dark Side of the Moon í heild sinni með öllum sínum gullmolum auk þess sem aðrir þekktir slagarar fengu að njóta sín í öflugu hljóðkerfinu. Má þar meðal annars nefna Wish You Were Here, Another Brick in the Wall og Comfortably Numb. Einnig spilaði Waters nýlegt lag frá sólóferli sínum, Leaving Beirut, þar sem hann gagnrýndi harðlega stríðsreksturinn í Írak og skaut föstum skotum að Tony Blair og George W. Bush. Uppi á risastóru breiðtjaldi sýndi Waters síðan á skemmtilegan hátt smásögu sína í teiknimyndaformi sem textinn er byggður á. Breiðtjaldið kom vel út á tónleikunum og smellpassaði við tónlistina. Einnig voru hinar ýmsu raddir af plötunni látnar hljóma vítt og breitt um salinn í hátalarakerfinu á áhrifaríkan hátt. Að auki kom það gríðarvel út þegar geimfari sveif í lausu lofti um salinn undir ómþýðum tónum Waters og félaga. Sannarlega óvænt sýning. Eldglæringar og sprengingar komu einnig við sögu og áttu sinn þátt í að gera þessa tónleika að mögnuðu sjónarspili, fyrir utan konfektið sem þeir voru fyrir eyrun. Waters sjálfur plokkaði bassann af miklum þrótti á tónleikunum og söng af og til. Stundum gekk hann um sviðið og reyndi að ná til áhorfenda en hann hefði alveg mátt fá þá betur með sér í söng eða klappi. Hefðu þeir auðveldlega getað tekið yfir höllina í lagi á borð við Another Brick in the Wall. Engu að síður fínir tónleikar sem verða lengi í minnum hafðir. Freyr Bjarnason
Menning Mest lesið Misstu þrettán ára dóttur sína Lífið Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Lífið Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Lífið Hasar, húmor og hryllingur til að hámhorfa í haust Bíó og sjónvarp Staðráðnar í að koma sterkari til baka Tíska og hönnun Karl Th. Birgisson borinn til grafar Lífið Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Lífið Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Lífið Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Lífið Minningar um mömmu það allra verðmætasta Tíska og hönnun Fleiri fréttir Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Misstu þrettán ára dóttur sína Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Karl Th. Birgisson borinn til grafar Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Tvíburasystur fæddu börn sama dag á sama sjúkrahúsi Unnur Borg og Gugga saman í paradís Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Karl Th. jarðsunginn í dag Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Love on the Spectrum-stjarna spókar sig á klakanum Hvað veistu um... Pólland? Pattra með pæju-padelmót Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par „Þetta er bara nútímavændi“ Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Stökk Ulrike Meinhof í heim hryðjuverkanna „Eins og þegar einangrunarplasti er strokið eftir glerrúðu“ Krabbameinið það besta sem hafi komið fyrir hann Dorrit þvoði hárið í íslenskri náttúru Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir Sjá meira