Hippisminn er ódrepandi 14. júní 2006 13:00 Fortíðarfíklar geta varla fundið betri sveit en Wolfmother. Þessi plata gæti alveg eins verið týnt plata frá meisturunum í Led Zeppelin.
Ef ég vissi ekki að Wolfmother væri splúnkunýtt rokktríó frá Ástralíu þá hefði alveg verið hægt að ljúga því að mér að þetta væri gömul upphitunarsveit Led Zeppelin. Það er a.m.k. nokkuð víst að þessir piltar hafa eytt mörgum stundum í tímaferðalög aftur til sjöunda áratugarins. Samlíkingar við The White Stripes eru heldur ekki út úr kú. Þetta er sem sagt rokk í sinni hreinasta formi. Menn að spila blúsriff úr hundgömlum lampamögnurum sem er við það að springa af áreynslu. Trommarinn fer svo líklegast í gegnum fjögur pör af kjuðum á kvöldi. Svo er passað upp á að trommuhljómurinn sé algjörlega þurr og beint úr kúnni þegar kemur að hljóðblöndun. Þetta er hörkuband, það fer ekkert á milli mála. En það myndi nú ekkert skemma mikið fyrir þeim ef þeir væru ekki svona gífurlega fastir í áhrifavöldum sínum. Lög eins og White Unicorn gætu alveg eins verið afgangslög af lager Page og Plant. Sjálfur var ég nú alinn upp á Zeppelin loftfarinu af föður mínum og á því mjög auðvelt með að tengja mig við þetta og skil því vel hvað það er sem drífur þessa ungu menn áfram. En samt, af sama skapi á ég eflaust eftir að kjósa það frekar að fara í aðra flugferð í loftfarinu en að ríða á baki Úlfamömmu, langi mig í nostalgíuferðalag. En maður verður að taka þessari plötu fyrir það sem hún er. Grímulaus tilraun til þess að endurskapa þann galdur sem skapaðist þegar fjórmenningarnir í Zeppelin spiluðu saman. Sem slík, er þessi plata bara nokkuð gallalaus. Sterk heild, grípandi lög og frábær flutningur. Söngvarinn er líka alveg æðislegur. Hippisminn virðist vera eins og hver önnur baktería sem smitast á milli manna og heldur sér á lífi kynslóð eftir kynsóð með því að leita sér skjóls hjá viðkvæmum hýslum sem smitast auðveldlega. Víst að það er verið að endurskapa fornan galdur er það kannski hugmynd að prófa spila þessa plötu aftur á bak til þess að athuga hvort hér leynist satanískur boðskapur eins og má heyra þegar lagið Stairway to Heaven er spilað þannig. Og jú það er sannleikur, en ekki goðsögn! Prófið það bara sjálf ef þið trúið mér ekki! Ef Led Zeppelin bjuggu til tónlist Satans þá er óhætt að fullyrða að myrkrarhöfðinginn lifi góðu lífi í gegnum Wolfmother. Ef þetta er tónlistin í helvíti, þá eigið þið eflaust frekar eftir að finna mig þar eftir að ég renni mér í gegnum móðuna miklu. Eða í raftónlistarherberginu í Limbó. Birgir Örn Steinarsson
Menning Mest lesið Misstu þrettán ára dóttur sína Lífið Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Lífið Hasar, húmor og hryllingur til að hámhorfa í haust Bíó og sjónvarp Staðráðnar í að koma sterkari til baka Tíska og hönnun Karl Th. Birgisson borinn til grafar Lífið Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Lífið Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Lífið Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Lífið Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Lífið Minningar um mömmu það allra verðmætasta Tíska og hönnun Fleiri fréttir Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Misstu þrettán ára dóttur sína Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Karl Th. Birgisson borinn til grafar Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Tvíburasystur fæddu börn sama dag á sama sjúkrahúsi Unnur Borg og Gugga saman í paradís Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Karl Th. jarðsunginn í dag Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Love on the Spectrum-stjarna spókar sig á klakanum Hvað veistu um... Pólland? Pattra með pæju-padelmót Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par „Þetta er bara nútímavændi“ Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Stökk Ulrike Meinhof í heim hryðjuverkanna „Eins og þegar einangrunarplasti er strokið eftir glerrúðu“ Krabbameinið það besta sem hafi komið fyrir hann Dorrit þvoði hárið í íslenskri náttúru Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir Sjá meira