Lífið

Gyorgy Ligeti látinn

ligeti Gyorgy Ligeti er látinn, 83 ára að aldri.
ligeti Gyorgy Ligeti er látinn, 83 ára að aldri. MYND/AP

Gyorgy Ligeti, tónskáldið austurríska sem samdi meðal annars tónlistina við kvikmyndina 2001: A Space Odyssey, er látinn, 83 ára að aldri.

Ligeti var talinn mikill frumkvöðull á sínu sviði og þótti tónlist hans afar framúrstefnuleg á sínum tíma.

Stanley Kubrick, leikstjóri 2001: A Space Odyssey, ákvað að nýta krafta Ligeti á nýjan leik fyrir síðustu mynd sína, Eyes Wide Shut. Notaði hann þar tónverk Ligeti, Musica Ricercata II, sem aðalstefið í myndinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.