Trúin falleg og strákarnir líka 30. janúar 2005 00:01
Hún býr í landinu helga. Ákvað að söðla um og gerast au pair á framandi slóðum síðastliðið vor. Var valin til að gæta tveggja barna Jónínu Guðrúnar Árnadóttur og ísraelsks eiginmanns hennar í Shoham, úthverfi Tel Aviv, en Jónína kynntist mannsefni sínu þegar bæði unnu á samyrkjubúi í Ísrael. "Þetta er ósköp venjuleg fjölskylda; Jónína vinnur hjá hátæknifyrirtæki en maður hennar hjá öryggisþjónustu, en krakkarnir eru fjögurra ára stelpa og átta ára strákur. Þau töluðu nánast enga íslensku þegar ég kom út en mér hefur tekist að kenna þeim nær lýtalausa íslensku," segir au pair-stúlkan Sigrún Sæmundsdóttir sem leggur stund á hebreskunám meðfram húsmóðurstarfinu í Shoham. Sigrún segir öryggisgæslu og vopnaburð gífurlegan í landinu; jafnvel inni á leikskólum. "Shoham-hverfið er læst á kvöldin og þannig eru vopnaðir verðir um alla borg. Maður skýst ekki út í búð án þess að skoðað sé í töskuna manns. Ég hef lært að Ísland er paradís þótt við séum óttalegir trúleysingjar, því við þurfum ekki að hafa áhyggjur af neinu. Íslensk ungmenni eru frjáls, meðan hér þurfa bæði kynin að gegna þriggja ára herþjónustu og ganga um með þungar vélbyssur; vopnuð frá toppi til táar. Það kom þó á óvart að lífið hér er ekki eins og maður sér í sjónvarpsfréttunum heima. Átökin eru bundin við mjög afmarkað svæði og engan veginn daglegt brauð meðal íbúa Ísraels." Sigrún segir Ísraelsmenn fallegt fólk. Hún hefur haft í nógu að snúast síðan hún fór utan fyrir tæpum átta mánuðum. "Ég var í sjokki fyrst yfir áhuga gyðingastrákanna; ekki síst þar sem ég er dökkhærð. Ég sker mig úr hópnum og þyki sjálfstæðari og þroskaðri en ísraelskar jafnöldrur mínar. Ég hef farið á mörg stefnumót og þeir hafa uppi verulega hallærislegar pick-up-línur þótt þeir séu upp til hópa yndislegar manneskjur. Það er erfiðara að kynnast ísraelsku kvenfólki en þær öfundast yfir athyglinni sem ég fæ og spá rosalega í útlitið enda fer þriðja hver í brjósta- og nefaðgerð. Þær eru súper grannar; mjög fallegar, en geta verið svolitlar tíkur í sér. Annars eru Ísraelsmenn mikið tískufólk og alltaf í ræktinni. Tel Aviv er strandborg og þar er unga fólkið á línuskautum og sýnir líkamana íklætt bikiníum og sundskýlum." Ísrael er fæðingarland Jesú Krists og hefur Sigrún aðeins ferðast um hans slóðir; þar sem öruggt þykir að fara. "Ég varð mjög snortin að fara til Jerúsalem og Nasaret. Þetta er svo heilagt og skrýtið að fólk geti verið í stríði þarna. Ég bý hjá gyðingum og þetta er gyðingaland. Skammast mín oft fyrir að vera trúleysingi því trú gyðinga er svo falleg. Heima fer maður í kirkju, sér frelsarann blóðugan á krossinum og fer að hugsa um dauðann. Ég gæti því vel hugsað mér að skipta um trú og búa í landinu helga til frambúðar, þótt ég sé rétt að byrja að skoða heiminn og ferðast sem au pair," segir Sigrún glaðlega; spennt að fara utan aftur.
Innlent Menning Mest lesið „Hún byrjaði alla daga á því að fara í kirkjugarðinn í Fossvogi“ Lífið Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Lífið Unglingavinnan var tískupallurinn í París Lífið Fundu hvor aðra í prjónaskapnum Tíska og hönnun Neitar að hafa haldið fram hjá Lönu del Rey Lífið Ice Spice fór á klósettið á OTO Lífið Fréttatía vikunnar: Jesus, Haaland og Prettyboitjokkó Lífið Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Lífið Gengst loksins við fjörutíu ára gömlu ástarævintýri með Turner Bíó og sjónvarp „Þetta eru verstu fréttir sem ég hef fengið á ævi minni“ Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Haustbingó Blökastsins í beinni Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Unglingavinnan var tískupallurinn í París „Hún byrjaði alla daga á því að fara í kirkjugarðinn í Fossvogi“ Fréttatía vikunnar: Jesus, Haaland og Prettyboitjokkó Neitar að hafa haldið fram hjá Lönu del Rey Ice Spice fór á klósettið á OTO „Ef það er ekki erfitt þá er það ekki þess virði“ Auglýsing fyrir Bleiku slaufuna frumsýnd á Vísi og Sýn Minnkaði áfengisneysluna og kílóin fylgdu með Nálgunarbann á hendur Berry eftir ásakanir um að taka soninn hálstaki Útkall vegna heimilisofbeldis reyndist vera kynlífslæti Hvað veistu um... Mean Girls? Norðmenn gerðu símaat í Trévirki: „Ég er ingen kúnna um þetta“ Eiður auglýsir tyrkneska hárígræðsluklíník Leiðir skilja hjá Hrafnhildi Helgu og Árna Þorsteinn Víglunds selur Kjartanshöll í Garðabænum Lil Wayne trúlofaður 03-módeli Matthías Már með krabbamein Risastór tappakollur í fallegri íbúð Stöðvaði Skarsgård á leið í kvöldverð með Björk Þessu máttu alls ekki sleppa ef þú vilt lifa lengi Nadine og Þórhildur byrja með nýtt hlaðvarp Meirihluti stjórnar Rúv vill sniðganga Eurovision Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Misstu þrettán ára dóttur sína Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Karl Th. Birgisson borinn til grafar Sjá meira