Innlent

Upptaka evru verði könnuð

MYND/AP
Samfylkingin telur eðlilegt að skoða hvort upptaka evrunnar hér á landi sé besta leiðin til að koma í veg fyrir að íslenskt efnahagslíf þurfi áfram að búa við miklar gengissveiflur og háa vexti. Þingmenn flokksins leggja fram á næstu dögum þingsályktunartillögu um stöðu íslensku krónunnar. Jóhann Ársælsson, þingmaður Samfylkingarinnar, segir ástandið á markaðnum óviðunandi og bendir á að útflutnings- og samkeppnisgreinarnar eigi í miklum vanda vegna hás gengis og gríðarlegra sveiflna. Hann telur ekki rétt að fella gengið til að bregðast við slíkum vanda og vill að skoðað verði hverju búast megi við í framtíðinni. Jóhann segir að þá framtíð þurfi að bera saman við aðra möguleika sem séu til dæmis að taka upp aðra mynt eða myntviðmiðun eða hvað það sé sem sérfræðingar telja að komi Íslendingum að gagni í þessum bardaga. Líklegast sé verið að ræða um evruna í því sambandi og þá aðild að Evrópusambandinu en það sé ekki hægt útiloka neitt. Fræðimönnum hafi ekki komið saman um hvort aðrir möguleikar séu fyrir hendi en að ganga í Evrópusambandið. Íslendingar þurfi fyrst og fremst að vita hverju þeir eigi von á í framtíðinni því ef útflutnings- og samkeppnisgreinar eigi að lifa við þann veruleika sem sést hafi í gegnum tíðina þá skapist ekki atvinna fyrir fólk í þessum greinum í framtíðinni með sama hætti oig mögulegt er. Ágúst Ólafur Ágústsson, félagi Jóhanns í Samfylkingunni, segir að viðskiptalífið hér á landi hafi verið slakt í að hvetja til þess að gengið verði í Evrópusambandið þvert á það sem viðskiptalífið í öðrum löndum hafi gert. Fyrirtækin skynji það að þau þurfi á stöðugleika að halda og auk þess séu 60 prósent af utanríkisviðskiptum Íslands við lönd Evrópusambandsins og það sé margs konar ávinningur að hafa sama gjaldmiðil og helsta viðskiptasvæði Íslands.    



Fleiri fréttir

Sjá meira


×