Jafnt hjá Grindavík og Þrótti 26. júní 2005 00:01
Leikur Grindavíkur og Þróttar fór rólega af stað, en bæði lið mættu þó nokkuð ákveðin til leiks og voru fjórir leikmenn áminntir á fyrstu þréttán mínútum leiksins. Þrótturum gekk ágætlega að ná tökum á leiknum með Pál Einarsson í aðalhlutverki inn á miðjunni. Varnarleikur Grindvíkinganna var ekki nægilega góður, en þeir voru fyrir leikinn ekki búnir að fá á sig mark í þrjá leiki í röð. Þróttarar komust yfir á 16.mínútu með glæsilegu marki hjá Halldóri Arnari Hilmissyni, sem skoraði með góðu langskoti efst í hægra markhornið. Eftir markið róaðist leikurinn nokkuð og var tíðindalítill fram að hálfleik. Milan Stefan Jankovic gerði taktíska breytingu á liði sínu í seinni hálfleik, en þá spilaði hann með þrjá menn í vörn, fimm á miðjunni og tvo frammi. Þetta heppnaðist ágætlega og voru Grindvíkingar frískir til þess að byrja með. Á 68.mínútu tókst Magnúsi Þorsteinssyni að jafna leikinn eftir að Óskar Hauksson hafði lyft honum fallega inn fyrir vörnina. Magnús fékk þar boltann og náði að vippa boltanum í markið. Vel að verki staðið. Óskar Hauksson, sem kom inn á í fyrri hálfleik fyrir Eyþór Einarsson, var Þrótturum erfiður í seinni hálfleik en hann gjörbreytti leik Grindvíkinga til hins betra. Bæði lið reyndu að spila boltanum með jörðinni og var ánægjulegt sjá það, en það er því miður sjaldséð að lið nái að einbeita sé að stuttum samleik allar níutíu mínúturnar. Páll Einarsson stóð upp úr í jöfnu liði Þróttar en Magnús Þorsteinsson og Óskar Hauksson voru frískastir heimamanna. Ásgeir Elíasson var ekki ánægður með niðustöðu leiksins. "Við áttum að gera betur í dag. Við spiluðum vel í fyrri hálfleik og hefðum átt að skora fleiri. En vonandi kemur það í næsta leik."Óskar Hauksson gjörbreytti leik Grindvíkinga í seinni hálfleik. "Við vorum heppnir í dag að ná stigi. En við náðum aðeins að laga þetta í seinni hálfleik en hefðum átt að setja meiri pressu á þá síðustu mínútur leiksins."
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Strákarnir læri af biturri reynslu Arnars með Davíð Oddssyni í Japan Fótbolti Stuðningsmaður Grindavíkur í bann fyrir bjórdósakast Körfubolti Blaðran heldur áfram að bögga McIlroy Golf „Þetta hliðarspor mun ekki breyta þeirri vegferð sem ég er á“ Íslenski boltinn „Eins og súpa sem vantar salt og pipar“ Fótbolti Kæra komin á borð KKÍ vegna Kane Körfubolti Gagnrýnir Körfuboltakvöld: Samþykkja svona hegðun og afvegaleiða umræðuna Körfubolti Lárus hættur í Þorlákshöfn Körfubolti Umdeilt víti gefur Celtic séns á titlinum en jafntefli dugir Tómasi og félögum Fótbolti Uppgjörið: Stjarnan - KR 2-1 | Stjarnan náði fram hefndum Íslenski boltinn Fleiri fréttir Hreinn úrslitaleikur um sæti í Bónus-deildinni McIlroy klár þrátt fyrir sársauka „Svo lærir maður á þetta og byrjar að blómstra í lífinu og golfinu“ Stuðningsmaður Grindavíkur í bann fyrir bjórdósakast Lárus hættur í Þorlákshöfn Benóný stýrði fögnuðinum Strákarnir læri af biturri reynslu Arnars með Davíð Oddssyni í Japan Stefnir á að slá heimsmetið aftur í september Sjáðu Foden stela senunni í sigri City Dagskráin í dag: Njarðvík getur tryggt titilinn og PGA meistaramótið hefst „Eins og súpa sem vantar salt og pipar“ „Þú þarft raunverulega að þjást“ „Mann fyrir mann eigum við að vinna þá“ Blaðran heldur áfram að bögga McIlroy Benóný Breki fer á Wembley ÍA vann Grindavík í vítakeppni eftir mikla dramatík Uppgjörið: Stjarnan - KR 2-1 | Stjarnan náði fram hefndum Umdeilt víti gefur Celtic séns á titlinum en jafntefli dugir Tómasi og félögum Afturelding skoraði fimm mörk og flaug áfram með Víkingum Safonov hetjan er PSG tryggði titilinn í toppslag Inter er bikarmeistari Ítalíu „Tímapunkturinn hefði ekki getað verið mikið verri“ Kæra komin á borð KKÍ vegna Kane Uppselt á innan við þremur mínútum á þriðja úrslitaleikinn City fagnaði gríðarmikilvægum sigri gegn Palace Dagur gat ekki stillt upp sínu sterkasta í tapi gegn Svíum Santos óskaði eftir starfslokum sem þjálfari Selfoss Birta mynd af „njósnara“ Southampton „Þetta hliðarspor mun ekki breyta þeirri vegferð sem ég er á“ Þróttur R. - Breiðablik 1-2 | Tíu Blikar tryggðu sig í átta liða úrslitin Sjá meira