Skorað á ráðherra og fjárlaganefnd 26. júní 2005 00:01
Áskorun til fjárlaganefndar Alþingis og menntamálaráðherra var undirrituð á málþingi um framtíð Héraðsskólahússins á Laugarvatni í gær. Þar er skorað á ráðherra og nefndina að beita sér fyrir að á fjárlögum verði eyrnamerktir fjármunir til endurbóta á húsnæði Héraðsskólans. Jafnframt var ákveðið að stofna félag í þeim tilgangi að hrinda hugmyndum um alþjóðlega listamiðstöð á Laugarvatni í framkvæmd. Málþingið var liður í dagskrá Gullkistunnar, listahátíðar á Laugarvatni, sem nú stendur yfir og lýkur um næstkomandi helgi. Héraðsskólahúsið er í umsjá Menntaskólans að Laugarvatni. Halldór Páll Halldórsson, skólameistari Menntaskólans að Laugarvatni, setti málþingið og gerði grein fyrir núverandi notkun á húsnæðinu og þeim aðgerðum sem gripið hefur verið til á undanförnum árum til þess að forða húsnæðinu frá frekari skemmdum, en það er mjög illa farið. Fram kom í máli Halldórs að mikill almennur áhugi væri fyrir að fá húsnæðinu verðugt hlutverk, jafnt meðal heimamanna sem og fulltrúa ríkisvaldsins, en margir fundir hafa verið haldnir í þeim tilgangi á undanförnum árum. Í framhaldi af því röktu Eyrún Ingadóttir sagnfræðingur og Pétur Ármannsson arkitekt sögu skólans í menningar- og byggingarsögulegu samhengi. Fram kom í erindi Eyrúnar og vakti athygli að aðalhvatamaður að stofnun héraðsskólans, Jónas frá Hriflu, hafði m.a. ætlað skólahúsnæðinu að vera eins konar hvíldarmiðstöð fyrir listamenn á sumrin. Mátti þannig heyra samhljóm með fyrstu hugmyndum um notkun húsnæðisins og nýjum hugmyndum um að stofna þar alþjóðlega listamiðstöð. Aðrir frummælendur voru listamennirnir Egill Heiðar Anton Pálsson leikstjóri, Elísabet Jökulsdóttir rithöfundur, Harpa Björnsdóttir myndlistarmaður og Þorvaldur Þorsteinsson myndlistarmaður og rithöfundur.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Fleiri fréttir Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Sjá meira