Innlent

Vinstri-grænir halda flokksþing

Landsfundur Vinstri - grænna verður settur eftir hálftíma og fljótlega og klukkan sex ávarpar Steingrímur J. Sigfússon, formaður flokksins landsfundarfulltrúa. Á fjórða hundrað fulltrúar eiga rétt til setu á landsfundinum sem er stærsti landsfundur Vinstri grænna til þessa, en um hundrað manns sátu fyrsta landsfundinn sem haldinn var á Akureyri árið 1999. Í drögum að ályktunum landsfundarins er meðal annars farið fram á að staðið verði í einu og öllu við samkomulag stjórnvalda við Öryrkjabandalag Íslands. Þá er þess krafist að látið verði af stóriðjustefnu og hafist handa við aðgerðir til að styrkja stöðu útflutningsgreina.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×