Erlent

Chirac mættur til vinnu

Jacques Chirac Frakklandsforseti stýrði í gær fyrsta ríkisstjórnarfundinum frá því hann þurfti að leggjast inn á sjúkrahús þann 2. september síðastliðinn, vegna kvilla sem læknar kölluðu "minni háttar æðatruflun" sem hamlaði honum sjón. Ráðherrar í stjórninni sögðu forsetann hafa virst hinn hressasti. Að læknisráði hefur Chirac þó ákveðið að halda sig heima er leiðtogar heims hittast á aðalfundi Sameinuðu þjóðanna nú í vikulokin. Dominique de Villepin forsætisráðherra verður staðgengill hans þar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×