NATO geri meira í Afganistan 13. september 2005 00:01
Varnarmálaráðherrar aðildarríkja Atlantshafsbandalagsins hertu í gær á undirbúningi að því að bandalagið víkkaði út starfssvið friðargæslusveita þess í Afganistan - sem Íslenska friðargæslan á aðild að - til alls landsins. Það gæti gert Bandaríkjamönnum kleift að kalla þúsundir hermanna heim, sem í bandalagi við afganska stjórnarhermenn hafa gætt öryggis í suður- og austurhéruðum landsins frá því að talibanastjórninni þar var steypt fyrir hátt í fjórum árum. Í þessum landshlutum eru skæruliðar talibana - og annarra andstæðinga stjórnarinnar í Kabúl - enn skæðir. Þó var ekki gert ráð fyrir að nokkur ákvörðun yrði tekin í málinu fyrr en eftir helgi, þar sem þingkosningar fara fram í Þýskalandi á sunnudag og málið er pólitískt viðkvæmt þar í landi enda eru margir þýskir hermenn í friðargæsluliðinu í Afganistan. Ríkisstjórn Gerhards Schröder kanslara er mótfallin því að friðargæsluverkefni NATO þar verði sameinað hinum hernaðarlegu verkefnum á skæruliðasvæðunum. Bandaríski varnarmálaráðherrann Donald Rumsfeld þrýstir hins vegar á um að NATO axli meiri ábyrgð í Afganistan.
Erlent Fréttir Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Ein matskeið og þá er dauðinn vís Innlent Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Innlent Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Erlent Fleiri fréttir Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Sjá meira