Óttast um líf þúsund sjía 31. ágúst 2005 00:01
Allt að eitt þúsund manns eru taldir hafa beðið bana í höfuðborg Íraks í gær þegar helgiganga sjía leystist upp í öngþveiti vegna ótta um að sjálfsmorðsprengjumaður væri í hópnum. Flestir hinna látnu tróðust undir í mannþrönginni en einnig drukknuðu margir í ánni Tígris. Talið er að rúmlega ein milljón trúaðra sjía hafi tekið þátt helgigöngunni í gær sem var haldin til minningar um dauða Moussa ibn Jaafar al-Kadhim árið 799, eins hinna tólf svonefndu imama sem sjíar hafa í hávegum. Sjö manns höfðu týnt lífi í sprengjuárásum sem gerðar voru við Khadim-moskuna í gærmorgun, þar sem imaminn liggur grafinn, og því voru margir þátttakenda í göngunni óttaslegnir um að ráðist yrði á þá. Þegar stór hluti göngunnar var staddur á Al-A'imma brúnni yfir Tígrisfljótið kom upp orðrómur að sjálfsmorðssprengjumaður væri í hópnum. Greip þá um sig mikil skelfing og algjört öngþveiti skapaðist. Stór hluti göngumanna virðist hafa troðist undir en þeir sem áttu fótum sínum fjör að launa stukku niður í Tígris, sem rennur tíu metrum undir brúnni. Margir þeirra komust ekki upp á bakka árinnar heldur drukknuðu í leirgulu fljótinu. Einn þeirra sem komst upp úr Tígris var Fadhel Ali, 28 ára. "Við heyrðum að maður væri með sprengju í hópnum. Allir tóku að hrópa og því dýfði ég mér í ána og synti til lands. Ég sá konur, börn og gamalt fólk falla á eftir mér ofan í fljótið." Fjöldi þeirra sem lést liggur ekki nákvæmlega fyrir en BBC hermir að allt að þúsund manns séu taldir af. Líkhús borgarinnar fylltust á augabragði og því voru lík geymd úti á götu í kæfandi hitanum. Grátandi ættingjar ráfuðu á milli líkanna og reyndu að finna ástvini sína þar á meðal. Að líkindum var enginn sprengjumaður í hópnum, í það minnsta hefur lögregla ekki fundið nein merki um sprengiefni. Samt sem áður kenndu leiðtogar sjía "öfgamönnum, stuðningsmönnum Saddams og hryðjuverkamönnum" um harmleikinn. Leiðtogar súnnía hafa hins vegar látið harm sinn í ljós. "Á þessari sorgarstundu vottum við öllum Írökum samúð okkar og sérstaklega foreldrum píslarvottanna sem í dag biðu bana í Kazimiyah-hverfinu," sagði Haith al-Dhari súnníaklerkur.
Erlent Fréttir Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Ein matskeið og þá er dauðinn vís Innlent Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Innlent Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Erlent Fleiri fréttir Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Sjá meira