Innlent

Halldór á móti ljósmyndasýningunum

Halldór Blöndal, forseti Alþingis, hefur sent Steinunni Valdísi Óskarsdóttur borgarstjóra bréf þar sem hann gagnrýnir þá ákvörðun embættisins að heimila að þriðja árið í röð verði stillt upp fyrirferðamiklum og grófum steinstöplum á Austurvelli þar sem ljósmyndum verði komið fyrir. Í bréfi sínu segir Halldór: „Ég hef áður látið í ljós þá skoðun mína, að mér finnist óviðeigandi að Austurvöllur sé notaður með þessum hætti, sem sýningarsvæði svo mánuðum skiptir. Ég fer enn fram á, að Reykjavíkurborg endurskoði afstöðu sína og finni sýningum sem þessum viðeigandi stað.“ Forseti Alþingis segir að lokum að hann telji óhjákvæmlegt að taka fram að að í þessum orðum felist ekki gagnrýni á þá listamenn, sem ljósmyndirnar eigi, en í sumar munu myndir eftir Ragnar Axelsson prýða Austurvöll, og án efa laða marga að, eins og sýningarnar síðustu tvö sumur.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×