32 ára hléi lokið hjá Rifsberja 16. nóvember 2005 13:00 Jakob Frímann mun stíga á stokk með hljómsveitinni Rifsberja sem ekki hefur komið saman í háa herrans tíð. "
Þessir tónleikar áttu að vera leyndarmál," segir Jakob Frímann Magnússon, einn meðlimur Rifsberja, þegar hann er inntur eftir heldur óvenjulegum atburði en í kvöld heldur áðurnefnd Rifsberja sína fyrsta tónleika í 32 ár á Næsta Bar. Auk Jakobs spila Stuðmennirnir Þórður Árnason, Tómas Tómasson og Ásgeir Óskarsson í sveitinni en við hljóðnemann verður Gylfi Kristinsson sem hætti á sínum tíma og lagði stund á framhaldsnám í sálarfræði. "Við hljóðrituðum aldrei neitt en í síðasta mánuði fundust upptökur í Danmörku frá sunnudagskvöldi í Glæsibæ," útskýrir Jakob og furðar sig á fundarstaðnum. "Fyrir þá sem vilja á hinn boginn kynna sér hljómsveitina vorum við undir áhrifum hennar þegar Stuðmenn tóku upp Tívólí," bætir Jakob við. Rifsberja spilaði þó nokkuð mikið á árunum 1971-73 og segir Jakob að flestir tónleikarnir hafi verið "djammsession" þar sem gestir og gangandi tóku í hljóðfæri og spiluðu með hljómsveitinni. "Við spiluðum þróað og framsækið rokk og vorum í miklu uppáhaldi hjá hippum þess tíma," segir Jakob en sá böggull fylgdi skammrifi að lítil sala var á barnum. "Það lagði þess í stað þykkan kannabisreyk yfir salinn, bareigendum til mikils ama," útskýrir hann og hlær. Sveitin kom iðulega fram með þykka leðurhatta frá Guðna Erlendssyni en hann var einhver framsæknasti hippi þess tíma að mati Jakobs. "Svo vorum við alltaf í dökkum fötum," bætir hann við og segir að þeir hafi stundum snúið baki í áhorfendur enda hafi hljómsveitir þess tíma verið í sífelldri sjálfskoðun. "Ég veit samt ekkert hvert við snúum í kvöld," viðurkennir hann. Hið sérkennilega nafn hljómsveitarinnar á sér nokkuð skringilega sögu en hún á rætur sínar að rekja til Seyðisfjarðar. "Þar var ungur drengur gripinn glóðvolgur við að ræna rifsberjum úr garði hefðarkonu. Þegar hún tók í hann varð drengurinn kjaftstopp en gat loks stunið upp einu orði sem var Rifsberja."
Menning Mest lesið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Hozier skemmti sér á almyrkvahátíð Tónlist Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Ólafur Darri herjar á ringlaðan Jamie Dornan Bíó og sjónvarp Efna til söfnunar í minningu Hennings Lífið Engin stereótýpa: „Það breyttist allt þegar ég var í fimmta eða sjötta bekk“ Áskorun Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Lífið Styrkir Minningarsjóð Bryndísar Klöru á Menningarnótt og skorar á aðra Tónlist Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Lífið Fleiri fréttir Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Ocasio-Cortez á lausu Frægustu mágar landsins Office-stjarna með ólæknandi krabbamein Sjá meira