Tíu ár frá komu TF-LÍF 23. júní 2005 00:01
Í dag eru tíu ár síðan björgunarþyrlan TF-LÍF kom til landsins. Landhelgisgæslan fagnar mörgum stórafmælum í ár. Því var fagnað mjög þegar TF-LÍF kom til landsins 23. júní árið 1995. Mikið var búið að fjalla um þörfina á annarri björgunarþyrlu og loks var ráðist í að kaupa TF-LÍF, næstum alveg nýja og fína, fyrir um átta hundruð milljónir króna. Það dreymir eflaust marga unga menn og konur um að komast í þyrluflugmannssætið því það er dálítil hetjuímynd sem fylgir þeim sem þar sitja þegar á reynir. Einn þeirra sem þar hefur setið, Benóný Ásgrímsson, flugstjóri hjá Landhelgisgæslunni, kann svo sannarlega að meta þetta tíu ára afmælisbarn. Hann segist hafa farið ýmsar erfiðar ferðir á henni og sambúðin hafi reynst afar farsæl til þessa. Benóný flaug bæði TF-SIF fyrir tuttugu árum og TF-LÍF fyrir tíu árum til landsins og hefur eytt ófáum stundum með þeim báðum síðan. En er nokkur leið að áætla hvað TF-LÍF hefur bjargað mörgum mannslífum á þeim áratug sem hún hefur verið í þjónustu Landhelgisgæslunnar? Benóný segist þurfa að fara í bækur til þess að kynna sér það nákvæmlega en hann geti fullyrt að það séu tugir mannslífa. Benóný segir erfitt að segja til um hversu lengi björgunarþyrlurnar eigi að endast en ef viðhaldið sé gott geti þær vel þjónað sínum tilgangi í tuttugu til þrjátíu ár. Og flugstjórinn segir þyrlurnar tvær, SIF og LÍF, mjög mismunandi. Þegar þær séu bornar saman minni þær á sportbíl og trukk. Litið sé á TF-SIF sem sportbíl en þegar virkilega á reyni sé gott að fara á trukknum, TF-LÍF. En það er ekki nóg með að TF-LÍF sé tíu ára heldur varð TF-SIF tvítug í apríl, Fokkerinn er að verða þrítugur, bæði þyrlusveitin og varðskipið Týr verða fertug í ár og flugdeildin fagnar fimmtíu ára afmæli. Svo það voru engar kökur á boðstólum í dag á afmælisdegi Lífar en starfsmennirnir tilkynntu að boðið yrði til sameiginlegrar stórveislu í haust enda mörgu að fagna.
Fréttir Innlent Mest lesið Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Innlent Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Innlent Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Innlent Eldur olli miklum skemmdum í kjallara Innlent Launahækkun Höllu illskiljanleg Innlent Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Erlent Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Innlent Nánast búin með stafrófið Innlent Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Erlent Vinstrið eygir þrjá borgarfulltrúa og sjálfstæðismenn þann sjöunda Innlent Fleiri fréttir Ný könnun og frægasti köttur landsins Kona flutt á sjúkrahús eftir bruna í kjallaraíbúð Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Grunaðir um að táldraga táningsstúlkur Eldur olli miklum skemmdum í kjallara „Hræðsluáróður, stagl og þvæla sem stjórnarandstaðan ætlar að keyra á“ Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Nánast búin með stafrófið Útlit fyrir flókna meirihlutamyndun í borginni Launahækkun Höllu illskiljanleg Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Mandarínönd heillar við Hamarkotslæk Öll tólf mánaða börn fá leiksskólapláss í Kópavogi Vilja að fullorðnir lofi að búa til rými þar sem börn geta sagt frá Vinstrið eygir þrjá borgarfulltrúa og sjálfstæðismenn þann sjöunda Bein útsending: Samtal um atvinnustefnu og aðgerðir í þágu verðmætasköpunar Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Sagðist ætla að kveikja í hundi áður en hann rændi gull- og demantsmunum Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Skýringar manns sem vildi „endurvekja þýsku sturturnar“ héldu ekki vatni Nánast hreint kókaín í umferð en ekkert fentanyl Ofsaakstur um allt höfuðborgarsvæðið Nám Hildar sé merkilegra en menntunarfræði leikskóla „Ég sé engin rök fyrir því“ „Það er bara frekar slæmt ástand“ Inga sendir boltann á sveitarfélögin „Hver hefur reynslu af því að byrla eiginkonu sinni?“ Vill verja hundruðum milljóna í þegar dýrt leikskólakerfi „Eitthvað það tilgerðarlegasta og hallærislegasta sem ég hef séð“ Þúsundir karla byrla eiginkonum sínum og nauðga Sjá meira