Efni frá tuttugu löndum 13. desember 2005 08:45 Andrés, Hjalti, Magnús og Jón Páll. Andrés Guðmundsson og Jón Páll reyna með sér í aflraunum. Í bígerð er heimildarmynd um Jón Pál, sem fjórum sinnum vann titilinn sterkasti maður heims.
Nýverið héldu kraftajötnar landsins upp á tuttugu ára afmæli aflrauna á Íslandi á Kaffi Reykjavík. Þar sýndi Hjalti Úrsus brot úr heimildarmynd sem hann er með í bígerð um ævi þekktasta aflraunamanns heims, Jóns Páls Sigmarssonar. Nýleg könnun, sem Gallup gerði fyrir Visa Europe og birtist í fjölmiðlum í gær, sýnir að Jón Páll á enn sinn fasta samastað í þjóðarsálinni því Íslendingar töldu hann vera þann íþróttamann sem væri í mestum metum. Í janúar á næsta ári eru þrettán ár síðan Jón Páll lést langt fyrir aldur fram, aðeins 33 ára að aldri. "Það hefur engum tekist að feta í fótspor Jóns Páls og hann á mikinn heiður að því hversu vinsælar aflraunir eru í dag," segir Hjalti, sem undanfarin þrjú ár hefur verið að safna efni í myndina en hann hefur fengið Steingrím Þórðarson til liðs við sig. "Við erum með umsókn í Kvikmyndasjóðnum og reiknum með að koma myndinni í kvikmyndahús í september á næsta ári," útskýrir hann en úgáfufyrirtækið Sena hefur einnig keypt sig inn í þessa framleiðslu. Hjalti segir að það verði ekkert til sparað við gerð myndarinnar og þeir muni meðal annars fá efni frá yfir tuttugu löndum enda þurfti Jón Páll að fara víða til að keppa. Þá reiknaði hann með að þeir sviðsettu einhver atriði úr æsku Jóns Páls og að þær tökur yrðu í maí. Þekktir kappar eins og Jeff Capes munu tjá sig um Jón en þeir tveir háðu oft harða keppni á sínum tíma. Hjalti segir því ljóst að það verði af nógu að taka en hann er þó hvergi banginn. "Ég tel mig þekkja þessa sögu nokkuð vel," segir hann. Jón Páll var feykilega vinsæll íþróttamaður og vakti mikla athygli á bæði land og þjóð með einstakri framkomu sinni. Hann vann titilinn "Sterkasti maður heims" fjórum sinnum og var kjörinn Íþróttamaður ársins 1981. Vinsældir Jóns Páls eru engu minni erlendis og á spjallsíðum má sjá að aðdáendur kappans bíða í ofvæni eftir myndinni. Sjálfur segist Hjalti hafa fengið beiðnir um að setja upp pöntunarlista á netinu fyrir DVD-útgáfuna.
Menning Mest lesið Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Lífið Misstu þrettán ára dóttur sína Lífið Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Lífið Hasar, húmor og hryllingur til að hámhorfa í haust Bíó og sjónvarp Karl Th. Birgisson borinn til grafar Lífið Staðráðnar í að koma sterkari til baka Tíska og hönnun Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Lífið Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Lífið Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Lífið Minningar um mömmu það allra verðmætasta Tíska og hönnun Fleiri fréttir Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Misstu þrettán ára dóttur sína Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Karl Th. Birgisson borinn til grafar Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Tvíburasystur fæddu börn sama dag á sama sjúkrahúsi Unnur Borg og Gugga saman í paradís Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Karl Th. jarðsunginn í dag Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Love on the Spectrum-stjarna spókar sig á klakanum Hvað veistu um... Pólland? Pattra með pæju-padelmót Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par „Þetta er bara nútímavændi“ Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Stökk Ulrike Meinhof í heim hryðjuverkanna „Eins og þegar einangrunarplasti er strokið eftir glerrúðu“ Krabbameinið það besta sem hafi komið fyrir hann Dorrit þvoði hárið í íslenskri náttúru Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir Sjá meira