The Aviator bar sigur úr býtum 17. janúar 2005 00:01
Kvikmyndin The Aviator í leikstjórn Martins Scorsese var sigurvegari Golden Globe-verðlaunahátíðarinnar í Hollywood í fyrrinótt. Hún var valin besta dramatíska myndin auk þess sem Leonardo DiCaprio var valinn besti dramatíski leikarinn og Howard Shore fékk verðlaun fyrir bestu tónlistina. Sideways aftur á móti var valin besta myndin í flokki gaman- eða söngvamynda. Í þeim flokki var Jamie Foxx kjörinn besti leikarinn fyrir hlutverk sitt í Ray, sem er byggð á ævi tónlistarmannsins látna Ray Charles. Foxx var tilnefndur til þrennra verðlauna á hátíðinni, sem er nýtt met hjá leikara, en bar ekki sigur úr býtum í hinum tveim flokkunum. Annars vegar var um að ræða besta aukahlutverkið fyrir myndina Collateral og hins vegar besti leikarinn í sjónvarpsmynd eða stuttum sjónvarpsþáttum fyrir Redemption. "Lífið leikur við mig um þessar mundir," sagði Foxx , sem er talinn líklegastur til að vinna Óskarsverðlaunin þann 27. febrúar. "Ég vildi óska að ég gæti dreift þessum tilfinningum mínum þannig að allir myndu elska hver annan aðeins meira." Hilary Swank fékk verðlaun sem besta leikkonan í dramatískri mynd fyrir Million Dollar Baby og Annette Bening var best í gaman- eða söngvamynd fyrir hlutverk sitt í Being Julia. Þær stöllur kepptu einmitt um Óskarsverðlaunin fyrir fimm árum. Þá vann Swank verðlaunin fyrir Boys Don´t Cry á meðan Bening þurfti að lúta í lægra haldi fyrir hlutverk sitt í American Beauty þrátt fyrir að hafa verið talin sigurstranglegri. "Þú leiðbeindir okkur svo snilldarlega og þú hefur aldrei staðið þig betur á ferlinum," sagði Swank um leikstjóra myndarinnar, gamla jaxlinn Clint Eastwood, sem var kjörinn besti leikstjórinn. Þá fengu Mick Jagger úr Rolling Stones og Dawe Stewart úr Eurythmics Golden Globe fyrir lagið Old Habits Die Hard úr Alfie. Sjónvarpsþátturinn Desperatie Housewifes var valinn sá besti í gaman- eða dramaflokki og Nip/Tuck fékk verðlaun sem besti dramatíski þátturinn. Robin Williams, fimmfaldur Golden Globe-verðlaunahafi, hlaut Cecil B. DeMille-heiðursverðlaunin fyrir farsælan kvikmyndaferil sinn. Verðlaunin tileinkaði hann vini sínum Christopher Reeve sem lést á síðasta ári.
Menning Mest lesið Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn Lífið Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Lífið Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Lífið Nicole er fyrir norðan Lífið Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Lífið Sannkallað stjörnubrúðkaup Katrínar Tönju og Brooks Lífið Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Lífið „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Lífið Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Lífið Frank Beard er látinn 77 ára að aldri Lífið Fleiri fréttir Frank Beard er látinn 77 ára að aldri „Ég vildi verða þrítug í Pucci“ Sannkallað stjörnubrúðkaup Katrínar Tönju og Brooks Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Prjóna á klúbbnum án þess að prjóna yfir sig Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Verjendur Davis segja ekkert að marka skjólstæðing sinn Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Sjá meira