Gámar fuku í sjóinn 7. ágúst 2005 00:01
Þakplötur losnuðu af húsum og vinnupallar tókust á loft þegar strekkingsvindar léku um höfuðborgarsvæðið og Suðurnesin í gærmorgun. Garðhúsgögn, grill, trampólín og skjólveggir fuku úr görðum og tjaldvagnar færðust úr stað á bílastæðum. Þá losnuðu tveir bátar frá bryggju í Fossvogi og rak á fjörur á Álftanesi. Að líkindum voru þó markverðustu áhrif hvassviðrisins þau að tveir gámar fuku af hafnarbakkanum í Kópavogi og út í sjó. Rak þá upp á Löngusker í Skerjafirði. "Fólk er ekki undir þetta búið á þessum árstíma," segir Jón Gunnarsson, framkvæmdastjóri Slysavarnarfélagsins Landsbjargar. Fjörutíu björgunarsveitarmenn tóku þátt í aðgerðum gærdagsins sem hófust um átta leytið á Suðurnesjum og um ellefu á höfuðborgarsvæðinu. "Menn eru með lausa hluti á byggingasvæðum sem ekki er búið að fergja og því takast þeir á loft þó að vindurinn sé kannski ekki mjög mikill," segir varðstjóri hjá lögreglunni í Reykjavík en á hans borð höfðu borist örfáar tilkynningar um fjúkandi hluti. Fréttir af veðrinu fóru misjafnlega í menn og eru dæmi um að fólk hafi ekki hætt sér út úr húsi. "Það hringdi hingað ung kona því hún náði ekki sambandi við almannavarnir. Hún vildi fá upplýsingar um hvort henni væri óhætt að fara úr Grafarvoginum suður í Kópavog," segir varðstjórinn. Hvassviðrið þurfti ekki að koma nokkrum manni á óvart, því hafði verið spáð og veðurfréttamenn raunar hvöttu fólk til að huga að lausum munum. Óli Þór Árnason, veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands, segir vind í sterkustu hviðunum í gær hafa mælst 43 metrar á sekúndu. Var það um hádegisbil undir Hafnarfjalli. Vindur hafi hins vegar verið að jafnaði um 20 metrar á sekúndu. Óli vill ekki ganga svo langt að kalla lægðina fyrstu haustlægðina en neitar því ekki að á henni sé haustbragur. "Ætli síðsumarslægð sé ekki nærri lagi," segir hann.
Fréttir Innlent Mest lesið Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Innlent Bó kvaddur í hinsta sinn Innlent Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Innlent Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Innlent Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Innlent „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Innlent „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Innlent Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Innlent Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Innlent Repúblikanar vinna orrustu í kjördæmastríðinu Erlent Fleiri fréttir Ísland stefni í sömu átt og Svíþjóð Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk Mega hjóla gegn einstefnu Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Bein útsending: Oddvitar í Reykjavík á kosningafundi Viðskiptaráðs Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Leiðir áfram unga miðflokksmenn Batahorfur betri eftir umferðarslys við Skógarveg „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Verðbólgan hjaðnar og vandræði í Landeyjahöfn Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Bó kvaddur í hinsta sinn Boða fjölgun flugferða á sama tíma og bátsferðir voru felldar niður Pílagrímaflug Air Atlanta á fullri ferð þrátt fyrir átök Urðu fyrir vonbrigðum með húsnæðispakka tvö Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Hnífstunga í heimahúsi í Árbæ Kvöddu þjóðargersemi með sögum og söng Fróaði sér úti og var gripinn með teiknað barnaníðsefni Sjá meira