Tjaldvagn fauk á bíla í roki 7. ágúst 2005 00:01
Það blæs hressilega í höfuðborginni, meira en 20 metra í sterkustu hviðunum. Tjaldvagn fauk á tvo kyrrstæða bíla, plötur losnuðu af Korpuskóla, bárujárnsplötur tókust á loft og ryðguð þakrenna sópaðist af húsi í Hafnarfirði. Bílstjórar verða að gæta sín á ýmsu sem fýkur út á götu, frauðplastkössum, plasttunnum, hríslum úr görðum og þvílíku. Tveir björgunarsveitarbílar hafa verið á ferðinni að aðstoða við að fergja dót sem annars gæti fokið og koma í veg fyrir að skemmdir hljótist af en yfir 20 hjálparbeiðnir vegna foks hafa borist svæðisstjórn sveitanna og er þessa stundina verið að fjölga björgunarmönnum. Veðrið hefur valdið erfiðleikum víðar á suðvesturhorninu. Björgunarsveitin Suðurnes í Njarðvík var kölluð út í morgun vegna foks í Keflavík og Njarðvík. Þá var björgunarskipið Einar Sigurjónsson á æfingu fyrir utan Hafnarfjörð í morgun þegar tilkynnt var um gáma sem fokið höfðu úr Kópavogshöfn. Um er að ræða tvo 40 feta gáma. Þeir eru tómir. Björgunarskipið fór á vettvang og hefur gámana nú rekið upp á Löngusker. Beðið er átekta með frekari aðgerðir. Að sögn lögreglunnar hafa hvorki orðið slys á fólki né tilfinnanlegt tjón. Samkvæmt veðurspánni á að lægja nú upp úr hádeginu.
Fréttir Innlent Mest lesið Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Innlent Bó kvaddur í hinsta sinn Innlent Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Innlent Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Innlent Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Innlent „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Innlent „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Innlent Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Innlent „Hún er skrifuð af mér“ Innlent Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Innlent Fleiri fréttir Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna „Hún er skrifuð af mér“ Ísland stefni í sömu átt og Svíþjóð Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk Mega hjóla gegn einstefnu Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Bein útsending: Oddvitar í Reykjavík á kosningafundi Viðskiptaráðs Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Leiðir áfram unga miðflokksmenn Batahorfur betri eftir umferðarslys við Skógarveg „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Verðbólgan hjaðnar og vandræði í Landeyjahöfn Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Bó kvaddur í hinsta sinn Boða fjölgun flugferða á sama tíma og bátsferðir voru felldar niður Pílagrímaflug Air Atlanta á fullri ferð þrátt fyrir átök Urðu fyrir vonbrigðum með húsnæðispakka tvö Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Hnífstunga í heimahúsi í Árbæ Sjá meira