Búist við útvatnaðri umbótaályktun 14. september 2005 00:01
Leiðtogafundur Sameinuðu þjóðanna hófst í höfuðstöðvum samtakanna í New York í gær. Á þessum 60 ára afmælisfundi stóðu vonir til að samþykktar yrðu tillögur að víðtækri endurskipulagningu og umbótum á uppbyggingu og starfsemi samtakanna, en sennilegast þykir að ekki takist samkomulag um annað en mjög útvatnaða útgáfu af þessum umbótatillögum. Göran Persson, forsætisráðherra Svíþjóðar, sem er starfandi forseti allsherjarþings SÞ, setti fundinn með ávarpi þar sem hann hvatti ráðamenn heims til að taka saman höndum um að hindra stríðsátök og þjóðarmorð og vernda mannréttindi. Yfir 160 þjóðar- og ríkisstjórnaleiðtogar mættu til að hlýða á Persson brýna fyrir sér að milljónir mannslífa væru í hættu ef ekki verður gripið til afdráttarlausra ráðstafana til að uppræta fátækt í heiminum. Kofi Annan, framkvæmdastjóri SÞ, sagði í ávarpi sínu að ályktunin sem leiðtogarnir munu afgreiða í lok fundarins á morgun væri "góð byrjun" en ekki "þær víðtæku grundvallarumbætur" sem hann hefði lagt til. Hann kallaði eftir því að vasklega yrði gengið fram í að útkljá ágreiningsmál sem urðu til þess að ekki reyndist unnt að ná samkomulagi um að ganga lengra í þessari atlögu. "Því að eitt hefur komið skýrt í ljós í þessu ferli sem við hófum fyrir tveimur árum: hvað svo sem skilur okkur að stöndum við eða föllum saman, í þessum heimi þar sem allir eru háðir öllum," sagði Annan. George W. Bush Bandaríkjaforseti reyndi í ávarpi sínu að "selja" alþjóðasamfélaginu áform um að útbreiða lýðræði í Írak og víðar um heiminn, stokka upp starfsemi Sameinuðu þjóðanna og gera átak í að afnema hömlur á alþjóðaviðskipti. Margir í áheyrendahópnum hefðu frekar viljað heyra hann segja að Bandaríkin myndu hætta að sniðganga alþjóðasamninga á borð við Kyoto-sáttmálann og um stofnun Alþjóða sakadómstóls, en Bush vildi nota tækifærið til að lýsa fyrir leiðtogunum sýn sinni á það hver væru brýnustu úrlausnarefni alþjóðamála.
Erlent Fréttir Mest lesið Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Erlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Viðreisn tapar fylgi Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Innlent Fleiri fréttir Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Óttast um þúsund manns sem fastir eru í göngum í Nepal Átta látin og átján saknað eftir að ferju hvolfdi við Kýpur Óttast um fimmtán manns í kjölfar skyndiflóðs í Miklagljúfri Íranir svara fyrir sig og Trump ýjar að árásum á Kharg-eyju Loftárásir á Hormússundi hafnar á ný Rýmdi grunnskólann augnablikum áður en skyndiflóð skall á Bresk kona stungin til bana á lestarstöð í Þýskalandi Haraldur Noregskonungur jarðsunginn 9. september Sjá meira