Óljóst með hrefnuveiðar í sumar 19. apríl 2005 00:01
Enn hefur ekkert verið ákveðið um hrefnuveiði í sumar og ljóst er að ekkert verður úr veiðum á sandreyðum og langreyðum í sumar, þar sem langan undirbúning þarf til þeirra veiða. Ljóst er því að vísindaáætlunin, sem sett var fyrir þremur árum, um að veiða 200 hrefnur, 100 sandreyðar og 200 langreyðar mun taka mun lengri tíma en áætlað var, ekki síst í ljósi þess að úr þessu er víst að hvorki sandreyðar né langreyðar verða veiddar í ár. 25 hrefnur voru veiddar í fyrra, ellefu færri en árið áður, þegar veiðarnar hófust aftur eftir langt bann. Hrefnuveiðivertíðin í Noregi hófst í gær og munu umþað bil 30 skip stunda veiðarnar enda kvótinn meiri en áður, eða rúmlega 700 dýr. Þrátt fyrir mikinn áhuga á veiðunum hefur gengið illa að selja hrefnukjötið á norskum markaði undanfarin ár líkt og hér á landi. Birgðir hafa hrannast upp í Noregi og loks verið fargað fyrir opinbera styrki. Hrefnuveiðimenn eru hins vegar bjartsýnir að þessu sinni þar sem nokkrar verslanakeðjur ætla nú í fyrsta skipti að taka hrefnukjöt til sölu og til stendur að vinna kjötið meira fyrir neytendur en hingað til. Hrefnukjöt hefur verið selt í stórmörkuðum hér á landi en sala gengið treglega enda er hrefnukjötið hætt að vera þáttur í matarvenjum hér eins og í Noregi eftir langt veiðibann og að líkindum á gagnrýni á hvalveiðar einhvern þátt líka.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert Innlent Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Innlent „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ Innlent Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Innlent „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði Innlent Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Innlent Fleiri fréttir Þyrluútköllum fjölgað verulega milli ára Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Sjá meira