Losar um orkuhnúta 5. janúar 2005 00:01
Bergur Björnsson er titlaður reikimeistari. Ekki vita allir hvað það þýðir en Bergur hefur stundað þetta nærri aldarfjórðung og haldið mörg námskeið í þessum fræðum. "Reiki er ekki beinlínis starf heldur lífsstíll. Þegar þú lærir reiki þá ertu tengdur við reikiorkuna og hún fer að hafa áhrif á þig. Þú getur þá notað hana bæði fyrir sjálfan þig og aðra. Ég stend í þeirri meiningu að við séum andlegar verur sem höfum tekið okkur bólfestu í mannlegum líkama. Í reiki eru engar fjarlægðir og engir veggir. Við getum sent reiki til manneskju í annarri heimsálfu eins auðveldlega og manneskju í næsta herbergi. Reiki er ein tegund af heilun og tengist í rauninni öllum þeim sem vinna með fólk. Þeir sem starfa við nudd, jóga eða sjúkraþjálfun og hafa lært reiki eru mun sterkari í sínu starfi fyrir vikið." Aðspurður hvernig áhrifum fólk verður fyrir á námskeiðunum segir hann: "Flestir finna fyrir því þegar þeim er sent reiki. Þeir sem eru veikir fyrir finna þó mest fyrir reikinu því þá er það sterkast. Reikið tekur á fyrirstöðu og losar um orkuhnúta. Ef þú sendir reiki til manneskju sem ekkert er að getur það virkað sem slökun eða hugleiðsla. Ef hún er í andlegu ójafnvægi eða stressuð þá róast hún og henni líður betur. Það er eins og þú sért kominn með fleiri verkfæri til þess að leysa vandamálin og meiri orku til þess að vinna með. Þannig verkar reikið fyrir okkur sem höfum lært það." Á milli þess sem Bergur stundar þetta fag keyrir hann sendibíl. "Á tímabili var þetta fullt starf og þá var ég að kenna fólki reiki. Svo er eins og það sé heldur lítill hluti af fólki sem þetta höfðar til. Þegar ég er búinn að kenna þeim þá hafa hinir sem eftir eru engan áhuga. Mörgum finnst þetta vera bull." Bergur byrjaði að læra reiki árið 1989 en þá var fyrsta námskeiðið haldið hérlendis. "Ég fór svo til Ameríku og lærði meira og varð meistari. Ég hef kennt mörgum reikimeisturum. Þetta er frekar auðvelt að læra og námskeiðið tekur aðeins tvo daga. Þar fær fólk tilsögn um hvernig skal nota reiki. Aðalatriðið er að fá vígslur þar sem þú ert tengdur við orkuna. Eftir það finnur þú fyrir því að hún er til staðar. Reiki styrkir í rauninni eiginleika þína og ef þú hefur andlega hæfileika þá styrkjast þeir eftir að þú lærir reiki."
Menning Mest lesið Rúrik í næstvinsælustu Netflix mynd í heimi Bíó og sjónvarp Móðir drengs í ofbeldissambandi opnar sig Lífið Furðubandið sem tryllti netið Lífið Stjörnulífið: „Sannleikurinn er sexí“ Lífið Ráðherrabarn komið í heiminn Lífið „Ekki óttast mistök, en vertu skíthrædd við eftirsjá“ Lífið Offset skotinn við spilavíti í Flórída Lífið Kröfuharður og með öll smáatriði á lás Tíska og hönnun Ye á Wireless: Styrktaraðilar hætta við og forsætisráðherrann blandar sér í málið Lífið Ákváðu að gifta sig strax þegar ljóst var að tíminn væri naumur Lífið Fleiri fréttir Ráðherrabarn komið í heiminn Furðubandið sem tryllti netið Móðir drengs í ofbeldissambandi opnar sig Offset skotinn við spilavíti í Flórída „Ekki óttast mistök, en vertu skíthrædd við eftirsjá“ Ye á Wireless: Styrktaraðilar hætta við og forsætisráðherrann blandar sér í málið Stjörnulífið: „Sannleikurinn er sexí“ Skagarokk: Boða til Black Sabbath messu og tónlistarveislu næstu helgi Ákváðu að gifta sig strax þegar ljóst var að tíminn væri naumur „Við erum öll nóg“ „Sjálfsvinna er ævistarf“ „Þetta var morðingi frænda míns, bara alvöru morðingi“ „Þetta gekk eins og í lygasögu“ „Ég hélt að ég væri hreinlega að deyja“ „Ég ræð ferðinni“ Jökull og Telma hvort í sína áttina „Þessi Barbie-dúkka horfir ekki á neitt nema spegilinn“ „Fegurð er miklu meira en bara útlit“ Stórum hluta kærunnar vísað frá Íslandsvinurinn Gucci Mane frelsissviptur Birnir á lag ársins Myndaveisla: Hundar og kettir velkomnir síðan árið 2017 „Enginn skömm að því að leita sér hjálpar“ Logi Bergmann spyr fjölmiðlamenn spjörunum úr „Ef þú ert að fara í gegnum helvíti haltu bara áfram“ Páskar: Ef þú mættir velja einhvern til að krossfesta Hvað veistu um… Óskarsverðlaunin? Bubbi, kílómetragjaldið og svikin um boltaland fyrir fullorðna Notaði allar líflínurnar í byrjun þáttarins Hlustendaverðlaunin: Kaleo er flytjandi ársins Sjá meira