Stokkandarkolla olli kláða Jóhanna Sigþórsdóttir skrifar 6. október 2005 06:00 Sökudólgurinn fundinn Stök stokkandarkolla með unga er talin hafa orsakað mikla fjölgun sundlirfa sem ollu sundmannakláða hjá þúsundum gesta í Landmannalaugum.
Sundmannakláði sá sem blossað hefur upp í Landmannalaugum á síðustu árum er rakinn til stakrar stokkandarkollu sem hefur haldið til við Laugalæk, sem er heitur lækur á svæðinu, er fólk hefur stundað böð í. Þetta kemur fram í áhugaverðri grein eftir Karl Skírnisson og Libusa Kolarova dýrafræðinga í nýjasta hefti Læknablaðsins. Dýrafræðingarnir hafa unnið að rannsóknum á uppruna sundmannakláðans sem hefur verið hvað skæðastur í ágústmánuði undanfarin ár. Þá reyndist fjöldi sundlirfa fuglasníkjudýra mjög mikill en fór minnkandi eftir því sem leið á haustið. Skyndileg fjölgun þessara lirfa á þessu tímabili árin 2003 og 2004 er rakinn til stokkandarkollu sem verpti við baðstaðinn og ól þar upp unga sem bæði reyndust smitaðir af nasa- og iðraögðum þegar að var gáð. Talið er að ungarnir hafi smitast strax og þeir klöktust úr eggjum og átt stærstan þátt í að magna upp lirfusmitið. Dýrafræðingarnir benda á að koma megi í veg fyrir skyndilega fjölgun sundlirfa í Laugalæknum á síðari hluta sumars með því að meina stokkönd að ala þar upp unga. Ekki sé þó víst að alfarið verði komið í veg fyrir kláðann með því.
Mest lesið Samþykktu aldrei að Sanna fengi oddvitasætið Innlent Minnir á hvernig Hitler komst til valda Innlent Þjóðverjar yfirgefa Grænland Erlent Rúmlega tuttugu látnir eftir árekstur tveggja hraðlesta Erlent Önnur stúlka með móður sinni þegar Högni var klófestur Innlent Vilja beita „ofurvopni“ ESB gegn Bandaríkjunum Erlent Sambandið aldrei verra: Ísland gæti bæst á listann Innlent Líkir kærunni við „faglega aftöku“ Innlent Ræddi við Trump: „Hlakka til að sjá hann“ Erlent Boðar leiðtogaráðið á aukafund vegna hótana Trumps Erlent Fleiri fréttir Samþykktu aldrei að Sanna fengi oddvitasætið Minnir á hvernig Hitler komst til valda VG og Sanna sameina krafta sína Sala á grænlenskum á Íslandi nær tvöfaldast Ekkert athugavert við fundinn og stjórnin starfshæf Stjórnvöld „í blindflugi“ í menntamálum í rúman áratug Haldið upp á 80 ára afmæli Hveragerðis allt afmælisárið Sambandið aldrei verra: Ísland gæti bæst á listann Dæmi um að nemendur hafi aldrei mætt í leikfimi Grænlandstollar vonbrigði og verðbólga spillir kjarasamningum Stöðugleikasamningarnir gætu sprungið strax í haust Heimsmálin, Grænland, menntun og fjölmiðlun á Sprengisandi Karólína Helga skákaði sitjandi oddvita í Hafnarfirði Ísland standi með Grænlandi og Danmörku Vonar að skólarnir verði frjálsir frá símum í haust Álagning aldrei hærri: Eldsneytisverð hefði átt að lækka enn frekar Líkir kærunni við „faglega aftöku“ „Vegferð ákæruvaldsins til skammar“ Menntamálaráðherra tekur yfir hjúkrunarheimilin Fjögur handtekin á Akureyri grunuð um innbrot Viðvarandi óvissuástand bitni á langtímaáætlunum fyrirtækja Einn endaði á hliðinni og þrjú klemmdust á milli Var í símanum við neyðarlínuna þegar ekið var aftan á hann Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna „Hef hvergi hallað réttu máli“ Önnur stúlka með móður sinni þegar Högni var klófestur Fá þau að vera aftur á lista með Hildi? Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut og tveir fluttir á slysadeild Eigum eftir að sjá hvort Guðbrandur bæti upp fyrir hegðun sína Umfangsmikil lögregluaðgerð við Glerárgötu á Akureyri Sjá meira