Engin tímamót 19. desember 2005 20:22
Formenn Samfylkingarinnar og Vinstri-grænna segja samkomulagið á ráðherrafundi Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar sem lauk í Hong Kong í gær hvorki marka tímamót hér á landi né erlendis. Samþykkt var að fella niður útflutningsstyrki fyrir búvörur fyrir árið 2013 en þeir voru afnumdir hérlendis árið 1990. Þá hefur Ísland þegar fellt niður tolla og kvóta á fjölmörgum vörum frá fátækustu ríkjunum. Ríkisstjórnin ræðir væntanlega á morgun ósk landbúnaðarráðherra um að skipa stýrihóp til að ræða breytingar sem þurfi að verða á styrkjakerfi í landbúnaði hérlendis á næstu árum. Í samkomulaginu í Hong Kong var þó einungis samið um mjög veigalitlar breytingar á viðskiptahindrunum og tollum. Íslendingar afnámu útflutningsbætur fyrir búvörur árið 1990 og vörur frá þróunarlöndunum eru ekki tollaðar nema í litlum mæli. Formaður Samfylkingarinnar segir þetta ekki marka tímamót, hvorki hér né annars staðar. Það sé þó ofurlítill áfangi fyrir þróunarlöndin. Hún segist þó fagna því ef landbúnaðarráðherra vilji endurskoða styrkjakerfið í landbúnaði. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, segir að það eigi við um flestar matvörur að þær eru hærri hér en víðast hvar annars staðar og hærri en víðast hvar á Norðurlöndunum. En hins vegar er auðvitað ekkert hægt að horfa framhjá því að landbúnaðarvörur eru líklega ímynda ég mér svona um helmingurinn af innkaupum hvers heimilis segir Ingibjörg. Þannig að þær vega auðvitað þungt í matarkörfunni. Ingibjörg telur að ef við hægt væri að lækka verðið á þeim þá myndi ýmislegt annað fylgja með í kjölfarið. Steingrímur J. Sigfússon segist fagna því að útflutningsstyrkir verði afnumdir þar sem þeir séu sérstaklega ósanngjarnir í garð þróunarlandanna. Að öðru leyti séu engin tíðindi af þessu samkomulagi, heimsviðskiptakerfið sé ekki að hliðra til svo þróunarlöndin geti notið góðs af alþjóðaverslun. Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri-grænna, segir að öðru leyti er það auðvitað bara viðfangsefni hér á Íslandi hvað við viljum gera sjálf í þessum efnum. Og þar höfum við undanfarin ár flutt tillögur um að hverfa frá beinum framleiðslutengdum styrkjum, að minnsta kosti í verulegum mæli, yfir í svona grunnstuðning sem ekki hafi framleiðslu, eða samkeppnistruflandi áhrif. Steingrímur J. segist þó telja að áhrif verndartollanna séu ofmetin í háu matarverði. Þeir séu aðeins einn þáttur. Þar komi einnig til smæð markaðarins, fjarlægðir, fákeppni og verndartollar.
Fréttir Innlent Mest lesið Virðist alls ekki sjá eftir skvettunni Innlent Obama svarar ásökunum Trump og Gabbard um valdaránstilraun Erlent „Íbúar eru einfaldlega komnir með nóg“ Innlent Ætlar að kæra skvettarann sem segir árásina „bara brandara“ Innlent Þingmaður telur að vísa ætti skvettaranum úr landi Innlent Starfsfólk kannist ekki við uppsteyt á kvennadeild Landspítalans Innlent Karl Héðinn stígur til hliðar Innlent Skildirnir hafi hótað konum sem setji út á þá Innlent Sérsveitin handtók mann í Garðabæ Innlent Þetta er fólkið á bak við Skjöld Íslands Innlent Fleiri fréttir Tengist ekki skuggaflota Rússlands Játaði gróft ofbeldi gegn eigin foreldrum og að hafa ekið á mann Þingmaður telur að vísa ætti skvettaranum úr landi Þyrlan sótti slasaðan einstakling í Skaftafell Gæsluvarðhald yfir sveðjumanni í Úlfarsárdal framlengt þriðja sinni Sjaldséður beinhákarl í Faxaflóa Sérsveitin handtók mann í Garðabæ „Íbúar eru einfaldlega komnir með nóg“ Einn handtekinn vegna frelsissviptingar í Árbæ Meirihluti vill banna sjókvíaeldi Almenn andstaða við sjókvíaeldi og neikvætt viðhorf til þéttingar byggðar „Þetta er grátt mál þó ég hafi ekki gert neitt rangt“ Ætlar að kæra skvettarann sem segir árásina „bara brandara“ Virðist alls ekki sjá eftir skvettunni Sökk í mýri við Stokkseyri Gosmóðan fýkur á brott Meirihluti landsmanna ánægður með söluna á Íslandsbanka Karl Héðinn stígur til hliðar 56 prósent landsmanna neikvæð gegn þéttingu byggðar Umferð beint um Þrengslin í dag Sjö í fangageymslum og þremur vísað úr kirkju Stöðug virkni í einum gíg og gosmengun spáð á Suðurlandi Ættingjar að verða fyrir hryllilegum ódæðum Starfsfólk kannist ekki við uppsteyt á kvennadeild Landspítalans Bergþórshvoll brenndur á fjögurra daga Njáluhátíð Skildirnir hafi hótað konum sem setji út á þá Fyrsti konsertflygilinn í Skálholtskirkju vígður „Hvetjum fólk til þess að treysta okkur bara fyrir því“ Sækja mann sem datt af hestbaki Lögregla afþakkar þjónustu Skjaldar Íslands og Guðni boðar brennu Sjá meira