Getur vel séð fyrir sér að verslunarmannafélög sameinist öll 8. desember 2005 15:54 Gunnar Páll Pálsson, formaður Verzlunarmannafélags Reykjavíkur. MYND/GVA
Formaður Verzlunarmannafélags Reykjavíkur getur vel séð fyrir sér að verslumannafélög landsins sameinist í eitt félag á næstu árum, en Reykjavíkurfélagið hefur nýverið gengið frá samkomulagi sem ljúka á með sameiningu við verslunarmannafélögin í Hafnarfirði og Vestmannaeyjum. Félagsmenn í Verslunarmannafélagið Hafnarfjarðar samþykktu fyrr í vikunni samkomulag um nánara samstarf við Verzlunarmannafélag Reykjavíkur. Í samkomulaginu er kveðið á um fulla sameiningu félaganna eftir eins árs reynslutíma, sé vilji fyrir því hjá báðum aðilum. Í síðasta mánuði var sams konar samkomulag gert við Verslunarmannafélag Vestmannaeyja en þar er reynslutíminn þó tvö ár í stað eins. Gunnar Páll Pálsson, formaður VR, segir að með samkomulaginu öðlist félagar í verslunarmannafélögunum í Hafnarfirði og Vestmannaeyjum full réttindi á við VR-félaga frá áramótum. Þá segir hann ávinninginn af sameiningunni allnokkurn. VR stækki og eflist sem eining sem verði hagkvæmari og þannig geti VR veitt félögum sínum betri og öflugri þjónustu. Gunnar segir frekari sameiningu verslunarfélaga ekki í hendi en hann geti vel hugsað sér að þau verði að einu í fyllingu tímans. Á þingi Landssambands íslenskra verslunarmanna hafi verið ákveðið að nota næsta ár til að ræða það hvort taka eigi upp mun nánari samvinnu meðal verslunarmannafélaga á landinu. Hann geti vel séð fyrir sér að þau renni saman í eitt landsfélag. Aðspurður hvort Verslunarmannafélag Íslands verði þá að veruleika innan nokkurra ára segir Gunnar ef af sameiningu verði, verði að finna nafn, en nú sé mjög í tísku að nota þriggja stafa skammstafanir.
Fréttir Innlent Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Innlent Fleiri fréttir Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Sjá meira