Seðlabankastjóri segir að núverandi gengi krónunnar muni ekki standast 5. desember 2005 23:15
Davíð Oddsson seðlabankastjóri segir að núverandi gengi krónunnar muni ekki standast en menn séu að búa í haginn fyrir það að óhjákvæmileg breyting verði þolanleg. Gengi krónunnar lækkaði um 1,3% í dag og hefur nú krónan lækkað um 5% á skömmum tíma. Á fyrsta viðskiptadegi eftir ákvörðun Seðlabankans á föstudag um að hækka stýrivexti um fjórðung úr prósenti lýsti formaður bankastjórnar því yfir á morgunverðarfundi Viðskiptaráðs Íslands að hörð vaxtastefna bankans stæði óhögguð. Bankinn myndi ekki hika við að beita sér að fullum þunga. Gagnrýni um að vaxtahækkun hans væri veikari lagi svaraði hann fullum hálsi. Davíð Oddsson seðlabankastjóri segir vera jafn mikla samfeldni og samheldni í ákvörðun bankans í september og nú. Hann segir það þýðingarmikið fyrir bankann að hann verði ekki sakaður um annað. Athygli vekur að mat greiningardeilda viðskiptabankanna á aðgerðum Seðlabankans er mismunandi. Edda Rós Karlsdóttir, forstöðumaður greiningadeildar Landsbanka, segir aðgerðirnar valda aðhaldi, þannig að þetta ætti að hjálpa til varðandi verðbólguna. En fyrst og fremst þá sé þetta framhald á því sem hafi verið að gerast í Seðlabankanum, eðlilegt framhald sem að vinnur allt saman að því að ná niður verðbólgunni. Ingólfur Bender, forstöðumaður greiningadeildar Íslandsbanka, segir ákvörðunina geta leitt til þess að verðbólga aukist, það er að segja ákvörðunin að fara út í 25 punkta hækkun frekar en að fara í 50 punkta. Krónan veiktist í dag um 1,3% og hefur þá gengi hennar lækkað um 5% frá því um miðjan nóvember. Davíð segir gengið sé í sögulegu hámarki allt frá því árið 1988 og þar með viðskiptahallinn. Menn séu reyna að búa í haginn til að breyting verði þolanleg og muni ekki skemma og skaða þau markmið sem bankanum er berið að sinna. Þórður Pálsson, forstöðumaður greiningadeild KB banka, segir að bankinn geri ráð fyrir að krónan muni vera sterk áfram fram eftir næsta ári en það fari að hilla undir lok þessa hágengistímabils undir lok næsta árs. Hann segir bankann gera ráð fyrir mildri veikingu fram eftir fyrra hluta næsta árs. En Davíð ræddi einnig húsnæðismálin og gagnrýndi eigin ríkisstjórn. Hann segir auðvelt að færa sæmileg rök fyrir því að ríkisstjórnin hefði mátt hugsa sinn gang betur þegar róttækar breytingar voru gerðar á húsnæðisstefnu stjórnvalda í byrjun uppsveiflunnar 2003 og skynsamlegra hefði verið að geyma þær til loka hagsveiflunnar. Hann segist þó vænta þess að menn átti sig á, að hvaða forsætisráðherra þessi gagnrýni snýr. Viðbrögð bankanna með vaxtalækkunum hefðu hins vegar komið stjórnvöldum í opna skjöldu. Davíð segir húsnæðiskerfið í gömlu myndinni hafa nánast orðið úrelt á augabragði, hvort sem mönnum líki það betur eða ver. Árni Magnússon félagsmálaráðherra segir það hafa verið pólitíska samstöðu að stjórnvöld komi að opinberum húsnæðislánum til þess einmitt að tryggja það að fólki, hvar sem að það býr og nánast við hvaða félagslegu aðstæður sem að er, njóti hagstæðustu kjara á húsnæðislánum. Hann telur að sá tími sé ekki liðinn. Þvert á móti. Hins vegar kunni framkvæmdin að breytast og verið væri að fara yfir þau mál. Davíð Oddson sagði á fundinum í morgun að hann teldi líkur á því að það dragi úr verðbólgu á næstu mánuðum, ekki síst í ljósi þess að gengishækkun hefði aðeins að litlu leyti skilað sér í innlendu verðlagi. Kólnun húsnæðismarkaðar gæti leitt til enn hraðari hjöðnunar verðbólgu.
Fréttir Innlent Mest lesið Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Erlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Lögreglan lýsir eftir Ingu Rún Innlent Fleiri fréttir Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Lögreglan lýsir eftir Ingu Rún Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjá meira