Ferðakostnaður hækkar 4. desember 2005 20:00
Risnukostnaður forsætisráðuneytisins jókst um rúm áttatíu prósent í fyrra, mest allra ráðuneyta. Ferðakostnaður allra ráðuneytanna jókst samanlagt um tuttugu og níu milljónir króna á síðasta ári. Heimastjórnarafmæli og ráðherrafundur Norðurlandanna er ástæðan að sögn upplýsingafulltrúa. Þetta kemur fram í svari fjármálaráðherra við fyrirspurn Jóhönnu Sigurðardóttur alþingismanns. Fram kemur í svari ráðherrans að ferðakostnaður, það er risna akstur og ferðir, hafi aukist um 29 milljónir á árinu 2004. Þau ráðuneyti sem hækkuðu mest á árinu 2004 voru forsætis- og utanríkisráðuneyti. Þannig jókst kostnaður forsætisráðuneytis um tæp 40% en utanríkisráðuneytisins um rúm 17%. Heiðurinn að mestu útgjaldalækkuninni í málaflokknum á síðasta ári á því Iðnaðar- og Viðskiptaráðuneytið en þar drógust útgjöld saman um 23%. Mest var þó útgjaldaaukningin í risnukostnaði ráðuneytanna eða rúm 10% á milli ára, hækkar úr rúmum 290 milljónum í tæpar 330 milljónir, eða fjörutíu milljónir á einu ári. Mestu munar þar um mikla aukningu í risnukostnaði forsætisráðuneytis sem óx um rúm 80% á milli ára, fór úr 12 milljónum í 23. Hlutur forsætisráðuneytisins í auknum útgjöldum ráðuneyta vegna risnu er þannig næstum þriðjungur.Samkvæmt upplýsingum úr forsætisráðuneytinu má skýra þessu miklu hækkun með því að fjórir stórir og dýrir atburðir á vegum ráðuneytis hafi sett strik í reikninginn. Þar á meðal eru veisluhöld vegna heimastjórnarafmælis, 60 ára lýðveldisafmæli, ráðherrafundar Norðurlandanna og ráðstefnum sem skrifist á risnureikning forsætisráðuneytis.
Mest lesið Kílómetragjaldið hækkar Innlent Ísland á Ameríkukorti Trumps Erlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Innlent „Hvar ætla þau þá að spara?“ Innlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Klórar sér í kollinum Innlent „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Innlent Fær að setja þessar fasteignir á sölu Innlent Fleiri fréttir Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Gríðarleg aukning í sölu á fánastöngum Sjá meira