Dæmdur fyrir að falsa sjúkraskýrslur og læknisvottorð 30. nóvember 2005 16:53 MYND/Vísir
Karlmaður var fundinn sekur í Héraðsdómi Reykjaness í dag um að hafa falsað sjúkraskýrslur, læknisvottorð og reikninga frá erlendum sjúkrahúsum fyrir fjórtán árum. Málið hafði áður fyrnst hjá Héraðsdómi Reykjavíkur. Árið 1992 vöknuðu grunsemdir hjá þremur tryggingafélögum - VÍS, Sjóvá-Almennum og Tryggingamiðstöðinni - um að ekki væri allt með felldu varðandi sjö til átta tjónsatburði sem maðurinn, kona hans og sonur þeirra höfðu fengið greiddar verulegar fjárhæðir fyrir. Öll tilvikin áttu sér stað erlendis á árunum 1988 til 1991. Var því óskað eftir opinberri rannsókn og leiddi hún til ákæru í þremur af umræddum tilvikum. Hins vegar varð bæði dráttur á rannsókn málsins hjá lögreglu, og meðferð málsins hjá Héraðsdómi Reykjavíkur, og var dómur ekki kveðinn upp fyrr en sumarið 2004. Voru brotin þá fyrnd og ákærði því sýknaður, þrátt fyrir að játning hans lægi fyrir. Tryggingastofnun ríkisins höfðaði þá einkamál á hendur manninum fyrir Héraðsdómi Reykjaness, þar sem maðurinn á nú lögheimili í hans umdæmi, og féll dómur í málinu í morgun. Þar var hann fundinn sekur um að hafa hafa falsað sjúkraskýrslur, læknisvottorð og reikninga frá erlendum sjúkrahúsum, meðal annars í tengslum við slys sem sonur mannsins átti að hafa lent í og meinta nýrnaaðgerð konu hans sen átti að hafa verið gerð í Austurríki. Manninum tókst þannig að svíkja út bætur fyrir rúmlega níu hundruð þúsund krónur. Var hinum dæmda gert að endurgreiða þá upphæð, með vöxtum, auk málskostnaðar upp á sjö hundruð þúsund krónur.
Fréttir Innlent Mest lesið Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Erlent Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Innlent Stígur fram sem „alræmdur faðir“ í Vesturbænum Innlent Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Innlent Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ Innlent Vilja skipa erindreka en vita ekki hvert erindið er Erlent Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Innlent „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Innlent Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Innlent Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Innlent Fleiri fréttir Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Verðlaunuð fyrir að bjóða unglingum upp á Sveitasælu Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Margrét Helga til Ríkisútvarpsins Nýr meirihluti í Hörgársveit Frumvarp um brottfararstöð úr nefnd í næstu viku Kjaftfullt í golfinu í Grindavík Vildi að betur hefði verið staðið að uppsögnum hótelstarfsfólks Bein útsending: Fjallað um mælanlegan árangur á ársfundi Landspítala Sjálfstæðisflokkur býður Gylfa Þór upp í dans í Mosó Funduðu án Valdimars og ætla að hittast aftur Meirihlutaviðræður tilkynntar í Mosfellsbæ í dag og Hildur hittir oddvita Nýr meirihluti í sameinuðu sveitarfélagi Fær engin símtöl: „Ekkert spenntur fyrir því að vera kostur, hvað, númer fimm?“ Guðjón skipaður í embætti forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri Segir ETS-kerfið þegar hafa bitnað á flugi til Íslands Lokun gistiskýlis fyrir hælisleitendur sé áfangasigur Enn unnið að myndun meirihluta og gistiskýlinu í Borgartúni lokað Fengu ekki Baldur Samfylkingin mótmælti tillögu borgarstjóra Á hreinu að Valdimar hefði fengið bæjarstjórastólinn Sjá meira