Mannfall eykst dag frá degi 30. október 2005 19:00
Mannfallið í Írak eykst dag frá degi. Bandarísk yfirvöld hafa í fyrsta sinn gefið út eigið mat á fjölda þeirra Íraka sem fallið hafa í árásum. Það segir sína sögu að tölur þeirra og annarra eru mismunandi, svo að skeikar þúsundum. Götur Bagdad í dag: blóði drifinn vettvangur skotárásar uppreisnar- og hryðjuverkamanna. Í þetta skiptið var það viðskiptaráðherra landsins sem særðist og líkamsverðir sem fórust, en oft eru það óbreyttir borgarar sem týna lífi í svona árásum, fólk sem á bara leið hjá og er óheppið. Talsmenn Bandaríkjahers segja átta af tíu árásum í landinu beinast gegn hersetuliðinu, en átta af tíu fórnarlömbum eru óbreyttir Írakar. Í skýrslu varnarmálaráðuneytis Bandaríkjanna til þingsins, sem greint var frá í dag, kemur fram að tuttugu og sex þúsund Írakar hafa verið drepnir eða særðir í árásum uppreisnar- og hryðjuverkamanna í Írak frá því í byrjun árs 2004. Ástandið fer versnandi: mannfallið jókst úr tuttugu og sex á dag á fyrsta ársfjórðungi 2004 í sextíu og fjóra undanfarna mánuði. Og þetta nær einungis yfir þá sem falla í aðgerðum uppreisnar- og hryðjuverkamanna, en ekki þá sem falla í aðgerðum hersins. Af tuttugu og fimm þúsund níu hundruð og tveimur fórnarlömbum segja sérfræðingar Iraq Body Count, samtaka sem reyna að fylgjast með mannfallinu í landinu, að þriðjungur hafi týnt lífi. Það þýddi rétt tæplega sexþúsund og fimm hundruð fallnir, sem er töluvert lægri tala en Iraq Body Count hefur og byggir á fregnum fjölmiðla. Talsmaður Human Rights Watch segir ennfremur í viðtali við New York Times að sér virðist tölur Bandaríkjahers í lægri kantinum. Samkvæmt tölum írakska innanríkisráðuneytisins féllu nærri átta þúsund og tvö hundruð óbreyttir, írakskir borgarar og lögreglumenn í árásum uppreisnar- og hryðjuverkamanna á tímabilinu ágúst 2004 til maí 2005.
Mest lesið Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Innlent Fleiri fréttir Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Óttast um þúsund manns sem fastir eru í göngum í Nepal Átta látin og átján saknað eftir að ferju hvolfdi við Kýpur Óttast um fimmtán manns í kjölfar skyndiflóðs í Miklagljúfri Íranir svara fyrir sig og Trump ýjar að árásum á Kharg-eyju Loftárásir á Hormússundi hafnar á ný Rýmdi grunnskólann augnablikum áður en skyndiflóð skall á Bresk kona stungin til bana á lestarstöð í Þýskalandi Haraldur Noregskonungur jarðsunginn 9. september „Framkvæmdastjórnin virðir vilja íslensku þjóðarinnar“ Sjá meira