Innlent

Útilokar ekki dómsmál vegna aflaheimilda

MYND/GVA

Formaður Landssambands íslenskra Útvegsmanna útilokar ekki að LÍÚ eða einstaka útvegsmenn höfði dómsmál í framhaldi af lögfræðiáliti sem lagt var fyrir aðalfund samtakanna. Í því eru aflaheimildir sagðar eign handhafa heimildanna en ekki sameign þjóðarinnar.

Björgólfur Jóhannsson, formaður LÍÚ, sagði við lok aðalfundar samtakanna í gær að honum fyndist ekkert athugavert við það þó einstaklingar sem teldu á sér brotið leituðu réttar síns með einhverjum hætti. Það hefði verið ástæða þess að LÍÚ fékk Guðrúnu Gauksdóttur, dósent við Háskólann í Reykjavík, til að kynna erindi sitt um eignarréttarákvæði stjórnarskrárinnar og veiðiheimildir við Ísland, á aðalfundinum. Björgólfur segir það liggja fyrir að útvegsmenn hafi verið og séu ósáttir við færslu aflaheimilda á milli greina. Hann segir að útgerðarmenn séu sammála um að ekki gangi upp að á sama tíma og lög geri ráð fyrir því að hægt sé að selja veiðiheimildir og kaupa, að þá geti löggjafinn verið að færa heimildir á milli kerfa. Aðspurður um hvort hann sjái fyrir sér að LÍÚ eða einstakir útvegsmenn þar innanborðs muni láta reyna á eignarréttinn fyrir dómi, sagðist Björgólfur ekki vilja lýsa því yfir fyrir hönd sinna manna, hann segir þó ekkert útiloka það að menn leiti réttar síns enda bendi allt til að svo sé raunin. Spurður um hvort með því væri útséð með að sátt næðist um fiskveiðistjórnunarkerfið, þar sem eign þjóðarinnar á óveiddum fiski væri þar eitt af stóru deilumálunum, sagði Björgólfur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×