Innlent

300 skjálftar við Grímsey

Grímseyjarhrinan er í rénun og verða nú um tveir skjálftar á klukkutíma. Alls hafa skráðst ríflega 300 skjálftar síðan á föstudagseftirmiðdag. Þeir stærstu urðu á milli klukkan fimm og tíu í gærmorgun en þá mældust fimm skjálftar um og yfir stærðinni þrír. Þetta er stærsta hrinan á þessu svæði síðan í janúar á þessu ári, en þá urðu yfir 500 skjálftar við suðurjaðar þessarar hrinu og einn skjálfti af stærðinni 4,5 sem fannst víða á Norðurlandi. Við Kistufell í norðanverðum Vatnajökli varð lítil hrina milli kl. níu í gærkvöldi og átta í morgun. Alls mældust sextán skjálftar, sá stærsti kl. 21.46 í gærkvöldi, en hann var um þrír að stærð.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×