Upptaka evru verði könnuð 5. október 2005 00:01 MYND/AP
Samfylkingin telur eðlilegt að skoða hvort upptaka evrunnar hér á landi sé besta leiðin til að koma í veg fyrir að íslenskt efnahagslíf þurfi áfram að búa við miklar gengissveiflur og háa vexti. Þingmenn flokksins leggja fram á næstu dögum þingsályktunartillögu um stöðu íslensku krónunnar. Jóhann Ársælsson, þingmaður Samfylkingarinnar, segir ástandið á markaðnum óviðunandi og bendir á að útflutnings- og samkeppnisgreinarnar eigi í miklum vanda vegna hás gengis og gríðarlegra sveiflna. Hann telur ekki rétt að fella gengið til að bregðast við slíkum vanda og vill að skoðað verði hverju búast megi við í framtíðinni. Jóhann segir að þá framtíð þurfi að bera saman við aðra möguleika sem séu til dæmis að taka upp aðra mynt eða myntviðmiðun eða hvað það sé sem sérfræðingar telja að komi Íslendingum að gagni í þessum bardaga. Líklegast sé verið að ræða um evruna í því sambandi og þá aðild að Evrópusambandinu en það sé ekki hægt útiloka neitt. Fræðimönnum hafi ekki komið saman um hvort aðrir möguleikar séu fyrir hendi en að ganga í Evrópusambandið. Íslendingar þurfi fyrst og fremst að vita hverju þeir eigi von á í framtíðinni því ef útflutnings- og samkeppnisgreinar eigi að lifa við þann veruleika sem sést hafi í gegnum tíðina þá skapist ekki atvinna fyrir fólk í þessum greinum í framtíðinni með sama hætti oig mögulegt er. Ágúst Ólafur Ágústsson, félagi Jóhanns í Samfylkingunni, segir að viðskiptalífið hér á landi hafi verið slakt í að hvetja til þess að gengið verði í Evrópusambandið þvert á það sem viðskiptalífið í öðrum löndum hafi gert. Fyrirtækin skynji það að þau þurfi á stöðugleika að halda og auk þess séu 60 prósent af utanríkisviðskiptum Íslands við lönd Evrópusambandsins og það sé margs konar ávinningur að hafa sama gjaldmiðil og helsta viðskiptasvæði Íslands.
Fréttir Innlent Mest lesið Gjörsamlega út í hött að þurfa að hanga svo lengi í stúdíóinu Innlent Ákærð fyrir manndráp: Á að hafa brugðið snöru um háls dótturinnar Innlent „Ásdís, stattu með samgöngusáttmálanum!“ Innlent Sjálfstæðisflokkur eykur forskotið á Samfylkingu í Reykjavík Innlent Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Innlent Ákærður fyrir að veiða minka Innlent Spurningunni verði breytt og svarið einfalt „Já“ eða „Nei“ Innlent Fjórar „brúðir ISIS“ snúa aftur til Ástralíu Erlent „Við erum bara komin aftur í Icesave-tímann“ Innlent Mikil tíðindi í nýrri Maskínu-könnun og fjölda afbrotamanna vísað úr landi Innlent Fleiri fréttir Leggja til að börn verði ekki vistuð í brottfararstöðinni Ekki hafi tekist að sanna að brotið hafi verið á friðhelgi Páls „Þetta eru bestu launin, hlýjan í hjartað“ „Við erum bara komin aftur í Icesave-tímann“ Sjálfstæðisflokkur eykur forskotið á Samfylkingu í Reykjavík Gögn íslenskra nemenda mögulega í höndum netþrjóta Mikil tíðindi í nýrri Maskínu-könnun og fjölda afbrotamanna vísað úr landi Ákærð fyrir manndráp: Á að hafa brugðið snöru um háls dótturinnar Þóra og Ríkisútvarpið sýknuð af kröfum Páls skipstjóra Gera athugasemdir við að borgarbúar kjósi í Kópavogi Gjörsamlega út í hött að þurfa að hanga svo lengi í stúdíóinu „Það má ekki eyða peningum sem Alþingi hefur ekki úthlutað“ „Ásdís, stattu með samgöngusáttmálanum!“ Breytt verklag útskýri hærri tölur í áhættumati Ákærður fyrir að veiða minka Eldur í mannlausri rútu í Laugardal Spurningunni verði breytt og svarið einfalt „Já“ eða „Nei“ Örlítið fleiri fæðingar en frjósemin stendur í stað Ein minniháttar líkamsárás á annars rólegri vakt lögreglu Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Hættum að vera þjóð ef við höldum ekki upp á íslenskuna Undirstöður Fossvogsbrúar reknar niður í sjávarbotninn Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík „Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef svo væri“ Kona á sjötugsaldri lenti á sjúkrahúsi með 125 pakkningar innvortis Vill fjölga börnum sem eru eingöngu á brjósti til sex mánaða Burðardýr í bráðaaðgerð og hindranir í samstarfi Gögnum nemenda mögulega stolið af Canvas Mælti sér mót við barn og réðst á það Talstöðinni í Kópavogi lokað: Enginn talmeinafræðingur tilbúinn til að taka við rekstrinum Sjá meira