Innlent

Játaði fíkniefnabrot

Mál mannsins er hluti af mun stærra fíkniefnabrotamáli, þar sem hann og sex aðrir menn eru ákærðir fyrir ýmis fíkniefnabrot, meðal annars að hafa farið til Reykjavíkur og keypt töluvert magn af amfetamíni og hassi, drýgt efnin, og flutt með sér til Akureyrar. Einnig tengist málið líkamsárásarmáli, þar sem nokkrir ungir menn eru ákærðír fyrir að hafa misþyrmt manni, stungið honum í skott á bifreið og keyrt með hann út fyrir bæjarmörkin. Enn hefur ekki verið ákveðið hvenær aðalmeðferð málanna fer fram.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×