Innlent

Í lífshættu vegna lyfjaskorts

Sjúklingur með skerta virkni í skjaldkirtli var kominn í lífshættu af því að lyf, sem hann var vanur að taka, var tekið út af skrá, en hliðstætt lyf sett inn í staðinn. Hann þoldi ekki nýja lyfið, þannig að hann hafði ekki lyf við sjúkdómnum og var orðinn mjög illa haldinn. Það var ekki fyrr en Gunnari Helga Guðmundssyni, yfirlækni á heilsugæslunni í Efstaleiti, tókst að útvega honum gamla lyfið aftur með aðstoð Lyfjastofnunar að heilsa sjúklingsins batnaði. Í Fréttablaðinu í gær var greint frá því að krabbameinslyf fyrir börn hefði ekki verið fáanlegt hér á landi þegar til átti að taka. „Endurtekinn skortur á tilteknum lyfjum er stórt vandamál," segir Gunnar Helgi. „Þegar læknar hittast ræða þeir þetta vandamál." Hann bendir á annað dæmi sem hann þekkir af eigin raun, þegar verkjalyfið Actiq, sem var nauðsynlegt fyrir sjúkling með óbærilega verki, hafði ekki verið útvegað tveimur mánuðum eftir að kvartað hafði verið við heildsalann. „Fyrra tilfellið kom sjúklingnum í lífshættu en í hinu síðara þurfti sjúklingurinn að þola langvarandi óbærilegar þján-inguar," segir Gunnar Helgi. „Þetta er einfaldlega brot á lyfjalögum," segir Sigurður Guðmundsson landlæknir, um þá stöðu sem upp hefur komið að tiltekin skráð lyf á lyfjalista hafi ekki verið til þegar átt hefur að ávísa þeim. Landlæknir segir þennan vanda hafa komið fram í máli lækna síðast í fyrradag. „Það er mjög skýrt í lögunum, að lyfjainnflytjendum ber skylda til þess að hafa lyf sem flokkast undir skráð lyf á lyfjalista til þegar á þeim þarf að halda. Ég og forstjóri Lyfjastofnunar skrifuðum heilbrigðisráðherra bréf í sumar vegna þessara atvika. Þar lögðum við til að skerpt yrði á lyfjalögunum, þannig að engin undanþága yrði gefin," segir landlæknir. Hann tekur fram að þetta eigi alls ekki við um alla innflytjendur. „Við viljum að lögin verði algjörlega skýr og það verði engin undanþága," bætir hann við. „Þetta erum við að leggja til við stjórnvöld. Þá munum við hamra á fyrirtækjunum um að standa sig í stykkinu."



Fleiri fréttir

Sjá meira


×