Misnotkun á ávanalyfjum vandamál 3. október 2005 00:01
Misnotkun á ávanabindandi lyfjum er vandamál að sögn aðstoðarlandlæknis. Hann segir að lítið hafi verið fylgst með lyfjanotkun Íslendinga hingað til en vitað er til þess að allt að tíu læknar hafi ávísað ávanabindandi lyfjum til eins og sama aðila. Aðstoðarlandlæknir segir þó að með nýju kerfi sé nú hægt að fylgjast betur með sjúklingum og læknum. Frá síðustu áramótum hefur Landlæknisembættið getað, með nýjum lyfjagagnagrunni, fylgst með öllum þeim lyfseðlum sem skrifað er upp en Matthías Halldórsson aðstoðarlandlæknir segir að verulega hafi komið á óvart hversu mikið magn fólk hafi fengið uppáskrifað af ávanabindandi efnum og hjá hversu mörgum læknum margir eru. Matthías segir að um mikið vandamál hafi verið að ræða. Landlæknisembættinu hafi lengi verið falið að fylgjast með þróun lyfjanotkunar í landinu en það hafi vantað tæki til þess. Hinn nýi lyfjagagnagrunnur sé bráðnauðsynlegt tæki til þess. Matthías tekur það þó fram að ekki sé verið að fylgjast með lyfjanotkun hvers og eins einstaklings heldur þeirra sem fari út yfir öll mörk. Hann segir ástæðu þess að farið var af stað nú þá að dauðsföllum af völdum ofnotkunar á lyfjum hafi fjölgað og að nauðsynlegt sé að hafa gagnagrunn sem fylgist með því hvers konar lyf og í hversu miklu magni fólk fær þau hjá lækni eða læknum. Og tilfellin eru ekki fá. Matthías segir fólk hafa farið til margra lækna í leit að lyfjunum og þá segir hann lækna verða mjög hissa þegar þeir heyri til hversu margra lækna fólk hafi leitað, en þetta hafi oft verið fólk sem hafi alls ekki borið með sér að það væri í lyfjamisnotkun og læknarnir hafi verið í góðri trú þegar þeir hafi gefið fólkinu lyfin. Matthías segir fólk ekki þurfa að hafa áhyggjur af því að hver sem er komist að þeim gögnum sem Landlæknisembættið býr yfir. Hann einn hafi upplýsingar um læknisferðir og lyfjanotkun fólks. Markmiðið með grunninum sé einfalt, að lyfseðlar séu gefnir út með eðlilegum hætti.
Fréttir Innlent Mest lesið Gjörsamlega út í hött að þurfa að hanga svo lengi í stúdíóinu Innlent Ákærð fyrir manndráp: Á að hafa brugðið snöru um háls dótturinnar Innlent „Ásdís, stattu með samgöngusáttmálanum!“ Innlent Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Innlent Spurningunni verði breytt og svarið einfalt „Já“ eða „Nei“ Innlent Fjórar „brúðir ISIS“ snúa aftur til Ástralíu Erlent Ákærður fyrir að veiða minka Innlent Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík Innlent Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Innlent Ted Turner er látinn Erlent Fleiri fréttir Ákærð fyrir manndráp: Á að hafa brugðið snöru um háls dótturinnar Þóra og Ríkisútvarpið sýknuð af kröfum Páls skipstjóra Gera athugasemdir við að borgarbúar kjósi í Kópavogi Gjörsamlega út í hött að þurfa að hanga svo lengi í stúdíóinu „Það má ekki eyða peningum sem Alþingi hefur ekki úthlutað“ „Ásdís, stattu með samgöngusáttmálanum!“ Breytt verklag útskýri hærri tölur í áhættumati Ákærður fyrir að veiða minka Eldur í mannlausri rútu í Laugardal Spurningunni verði breytt og svarið einfalt „Já“ eða „Nei“ Örlítið fleiri fæðingar en frjósemin stendur í stað Ein minniháttar líkamsárás á annars rólegri vakt lögreglu Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Hættum að vera þjóð ef við höldum ekki upp á íslenskuna Undirstöður Fossvogsbrúar reknar niður í sjávarbotninn Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík „Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef svo væri“ Kona á sjötugsaldri lenti á sjúkrahúsi með 125 pakkningar innvortis Vill fjölga börnum sem eru eingöngu á brjósti til sex mánaða Burðardýr í bráðaaðgerð og hindranir í samstarfi Gögnum nemenda mögulega stolið af Canvas Mælti sér mót við barn og réðst á það Talstöðinni í Kópavogi lokað: Enginn talmeinafræðingur tilbúinn til að taka við rekstrinum Ný könnun í Kópavogi: Meirihlutinn heldur en Samfylking á siglingu Sættir sig ekki við niðurstöðu klofins Mannréttindadómstóls Hátt í hundrað heimili hugsanlega yfir tekjumörkum hjá Félagsbústöðum Herjólfur siglir frá Landeyjum og um þrjú prósent hjá Félagsbústöðum með tekjur umfram skilyrði Allt í blússandi botni í Bolungarvík þrátt fyrir lokun Kjörbúðarinnar Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Pallborðið: Kópavogsoddvitar mætast og glæný könnun Sjá meira