Innlent

Síldarvertíðin hafin

Síldarvertíðin er hafin. Fjölveiðiskipið Beitir frá Neskaupstað landaði um 200 tonnum af síld í Neskaupstað í gær. Þetta er annar túr Beitis en skipið kom með aflann að landi á föstudaginn og fer aflinn til vinnslu hjá Síldarvinnslunni. Síldin hefur veiðst suðvestur af Hvalbak en það tekur um fimm tíma að sigla á miðin. Skip Samherja eru að veiðum út af Vestfjörðum en þar er lítið að hafa eins og stendur.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×