Harry enn og aftur í vandræðum 13. janúar 2005 00:01
Harry Bretaprins situr nú í súpunni, rétt einu sinni. Í þetta skiptið mætti hann með nasistaarmband í partí hjá vinum sínum. Harry er tuttugu ára gamall og hefur oftar en einu sinni lent í vandræðum vegna framkomu sinnar og lífernis. Honum þykir sopinn góður og er vel liðtækur í skemmtanalífi Lundúna. Ekki er langt síðan hann gaf ljósmyndara einn á lúðurinn þegar hann var að koma út af skemmtistað. Prinsinn er hins vegar glaðlyndur og góðviljaður þannig að honum er jafnan fyrirgefið þrátt fyrir mikinn hamagang í fjölmiðlum. Nú þykir hann hins vegar hafa farið verulega yfir strikið með því að mæta í eitt partíið með nasistaarmband. Myndir af því hafa farið eins og eldur í sinu um allan heiminn. Dickie Arbiter, fyrrverandi blaðafulltrúi konungsfjölskyldunnar, segir ótrúlegt að meðlimur í konungsfjölskyldunni, þótt ungur sé, skuli geta verið svona heimskur þrátt fyrir fyrsta flokks menntun. Hann segir fólk stöðugt minnt á það sem hafi gerst fyrir 60 árum í helförinni, ekki sé hægt annað en að vita hvað hafi gerst þar. Samt hafi Harry klætt sig svona, farið í partí og látið mynda sig. Gyðingar hafa tekið þetta óstinnt upp og utanríkisráðherra Ísraels segir framkomu prinsins óskiljanlega og óafsakanlega. Harry hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem hann segist harma það mjög ef hann hafi sært einhvern. Búningsvalið hafi verið einkar óheppilegt og hann biðjist afsökunar.
Menning Mest lesið Hjónaskilnaðir: „Þrjár leiðir færar til að semja um lífeyrisréttindi“ Áskorun Krakkatían: Vestfirðir, sundkappi og söngleikur Lífið Skyrið okkar ekki lengur ostur heldur jógúrt Lífið Sló sér upp með báðum á mótinu og endaði með sigurvegaranum Lífið „Við erum eiginlega gangandi kraftaverk“ Lífið Barnaefni fyrir fullorðna Gagnrýni Síðasta vígið fallið: „Við erum búnir að ræða þetta í 22 ár“ Lífið Ásdís Rán og Herbert Guðmunds glæsileg á frumsýningu Lífið Snýr aftur sem ritstjóri eftir tvo áratugi Lífið Fréttatía vikunnar: Þingsetning, landsleikur og klamydía Lífið Fleiri fréttir Safnaði fyrir draumaferðinni á þremur mánuðum Krakkatían: Vestfirðir, sundkappi og söngleikur Skyrið okkar ekki lengur ostur heldur jógúrt Snýr aftur sem ritstjóri eftir tvo áratugi Fréttatía vikunnar: Þingsetning, landsleikur og klamydía Nýr forseti ÍSÍ kallar eftir sameiginlegu átaki í lýðheilsu Ásdís Rán og Herbert Guðmunds glæsileg á frumsýningu Sveppi kominn í Púðursykur: „Vettvangur sem ég hef ekki farið inn á áður“ Stofnandi Omnom selur hönnunarhús í Akrahverfinu Sló sér upp með báðum á mótinu og endaði með sigurvegaranum Hollendingar bætast í sniðgönguhópinn Læknirinn með risa heimasmíðaðan pizzakofa í garðinum 2222 dagar sem betri útgáfa af sjálfum sér „Við erum eiginlega gangandi kraftaverk“ Síðasta vígið fallið: „Við erum búnir að ræða þetta í 22 ár“ Óttar selur glæsiíbúð í Garðabæ Guðlaugur Þór í klandri með klukkuna Brynja og Lil Curly ástfangin í draumkenndu fríi Ragnhildur Steinunn snýr aftur á hvíta tjaldið Birti bónorðið í Bændablaðinu Svona verður Moulin Rouge í Borgarleikhúsinu Tugmilljóna trúlofunarhringur ofurfyrirsætu vekur athygli Uppfyllti loksins loforð um ísbjörn í Reykjavík Áslaug Arna situr tíma hjá Hillary Clinton „Eiginlega vandræðalega mikil áhrif“ Er í lagi að fróa sér yfir nektarmyndum af fyrrverandi? „Pabbi minn gaf okkur saman“ Litrík og ljúffeng búddaskál Unnsteinn Manuel og Ágústa selja hvíta miðbæjarperlu Ekki allt sem sýnist í Coldplay-skandalnum Sjá meira